244. spurningaþraut: Fallegar byggingar, fylgjendur á Instagram og fleira

244. spurningaþraut: Fallegar byggingar, fylgjendur á Instagram og fleira

Hérna er þrautin frá í gær, gerið svo vel.

***

Á mynd­inni hér að ofan er fyr­ir­sæta sem átti sín mestu frægð­arár laust fyrir 1970, þegar hún var ekki síst fræg fyrir hve mjó­slegin hún var. Konan heitir Lesley að skírn­ar­nafni en það vita fáir, því allir sem þekkja hana á annað borð þekkja hana undir gælu­nafni. Hvað er gælu­nafnið?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Æðsti mað­ur­inn í ríki einu gaf á dög­unum út til­skipun þar sem kveðið var á um að fram­vegis skyldu opin­berar bygg­ingar í landi hans vera „fal­legar“. Mörgum fannst nokkuð djarft að gera slíka kröfu um svo umdeilt atriði sem feg­urð, þar sem sitt sýn­ist venju­lega hverjum. En hver er þessi leið­togi, sem gerir svo afdrátt­ar­lausa kröfu um „fal­legar“ bygg­ingar?

2.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Lissabon?

3.   Ný skáld­saga Ólafs Jóhanns Ólafs­sonar virð­ist hafa verið sölu­hæsta bókin í þess­ari jóla­ver­tíð. Hvað heitir sú saga?

4.   Hver hefur ann­ars oft­ast síð­ustu árin vermt efsta sætið á sölu­listum jóla­bóka­ver­tíð­anna?

5.   Árið 2012 vakti mikla athygli þegar ævi­saga um nokkuð sér­lund­aðan mann braust í efsta sæti bók­sölu­list­ans og varð met­sölu­bók árs­ins. Bókin skaut aftur fyrir sig nýj­ustu bókum fræg­ustu reyfara­höf­unda lands­ins. Maðurinn, sem um var fjallað í bók­inni, var þá lát­inn en hann hafði fyrst vakið veru­lega athygli í frægum sjón­varps­þætti árið 1984. Hver var mað­ur­inn?

6.   Florence Griffith Joyner dó árið 1998, aðeins 38 ára gömul. Fyrir hvað var hún fræg?

7.   Píreus heitir borg ein við sjó­inn. Hún er yfir­leitt nefnd til sögu sem hafn­ar­borg ann­arrar og mun fræg­ari borgar. Hver er sú borg?

8.   Hversu gömul er Jörðin? Hér má skeika all­miklu eða um 500 milljón árum.

9.   Heil­mikla athygli vakti um dag­inn þegar 27 ára gömul söng­kona til­kynnti að hún væri nú trú­lofuð. Raunar vekur flestallt sem þessi kona gerir athygli, því hún er nú sú kona sem flestir fylgj­ast með á Instagram. Þegar síð­ast frétt­ist fylgdu henni 211 millj­ónir manna. Hvað heitir hún?

10.   Einn karl­maður er fyrir ofan konu þessa á list­anum yfir fjölda fylgj­enda á Instagram. Hann hefur 246 millj­ónir fylgj­enda og er fjall­mynd­ar­leg íþrótta­stjarna. Hvað heitir hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan fædd­ist árið 1981 og heitir Ashley að skírn­ar­nafni. Hún er menntuð í mann­fræðum og hefur starfað mikið við ýmiss konar félags­þjón­ustu og góð­gerð­ar­mál. Nýlega fór hún svo að fást við fata­hönnun líka. Ashley þykir vera hin ágætasta mann­eskja, en það er þó ekki ein­göngu út á eigin verð­leika sem hún hefur verið tölu­vert í sviðs­ljós­inu upp á síðkastið. Heldur er ástæðan sú að Ashley er ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Donald Trump.

2.   Portúgal.

3.   Snerting.

4.   Arnaldur Ind­riða­son.

5.   Einbúinn Gísli á Uppsölum.

6.   Íþróttir. Hún var hlaupa­kona en það er nóg að nefna íþróttir.

7.     Aþena.

8.   Eftir því sem næst verður kom­ist er Jörðin rúm­lega 4,5 millj­arða ára gömul. Rétt telst því vera allt frá 4 til 5 millj­arða ára.

9.   Ariane Grande.

10.   Cristiano Ronaldo.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Gælunafn kon­unnar á efri mynd­inni er Twiggy.

Hún Ashley á neðri mynd­inni er dóttir Joe og Jill Biden.

Hér má sjá alla mynd­ina, þar sem hún er með for­eldrum sínum:

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár