Hægt að bólusetja meginþorra þjóðarinnar á fyrri helmingi næsta árs

Búið er að tryggja bólu­efni fyrir meira en alla íslensku þjóð­ina með samn­ingum við fjögur lyfja­fyr­ir­tæki. Búið er að und­ir­rita tvö samn­inga og stutt í að hinir tveir klárist. Talið er að hægt verði að bólu­setja meg­in­hluta þjóð­ar­innar á næstu þremur til fimm mán­uðum.

Talið er að hægt verði að bólu­setja meg­in­þorra þjóð­ar­innar á næstu þremur til fimm mán­uðum. Búið er að tryggja bólu­efni fyrir meira en alla íslensku þjóð­ina þó enn eigi eftir að skrifa undir samn­inga við tvö fyr­ir­tæki þar um. Þetta kom fram í máli Ástu Valdi­mars­dótt­ur, ráðu­neyt­is­stjóra í Heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu, á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis nú fyrir skemmstu. 

Pfizer lyfja­fyr­ir­tækið mun fá mark­aðs­leyfi í Evrópu fyrir bólu­efni sitt í dag, að öllu óbreyttu. Á milli jóla og nýárs munu ber­ast hingað til landa tíu þús­und skammtar af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins, rétt eins og til allra ann­arra landa innan ESB og EES. Unnið er að því að skipu­leggja bólu­setn­ingu lands­manna. 

Samkvæmt plani Pfizer munu Íslend­ingar fá 50 þús­und skammta af bólu­efni Pfizer fram í mars mánuð, sem dugar til að bólu­setja 25 þús­und manns. Þá er von­ast eftir að Moderna fái mark­aðs­leyfi í Evrópu 6. jan­úar næst­kom­andi og þá mun skýr­ast hversu hratt Ísland fær bólu­efni frá því fyr­ir­tæki. 

Rúna Hauks­dóttir Hvann­berg, for­stjóri Lyfja­stofn­unar, sagði einnig að bólu­efni muni koma mjög þétt á markað á næst­unni, stutt sé í bólu­efni frá fyr­ir­tækj­unum Jansen og AstraZenica. Því þurfi að horfa til þess einnig að Íslandi muni ber­ast bólu­efni frá þeim fyr­ir­tækjum. Þá sé einnig mik­il­vægt að horfa til þess hvernig öðrum þjóðum Evrópu muni takast til við bólu­setn­ingar, því það muni gagn­ast efna­hags­lífi álf­unnar allrar og þar með okkar. 

   

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Upplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sóttkvíarreglum þó smit komi upp í skólum
StreymiUpplýsingafundir um Covid-19

Enginn afsláttur af sótt­kví­ar­reglum þó smit komi upp í skólum

Komi Covid smit upp í skólum munu þeir sem útsettir kunna að hafa verið fyrir veirunni að fara í sótt­kví líkt og verið hefur. Enginn afsláttur verður gef­inn þar á nú fremur en áður, segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir. Mun meira er um að alvar­lega veikir ein­stak­lingar komi beint inn á spít­al­ann í inn­lögn en verið hefur en hafi ekki við­komu á Covid-göngu­deild fyrst. Það á við um þrjá af þeim níu sjúk­lingum sem lagst hafa inn á gjör­gæslu­deild í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár