243. spurningaþraut: Jóladagsþrautin er hér komin. Dundið við hana í náttfötunum.

243. spurningaþraut: Jóladagsþrautin er hér komin. Dundið við hana í náttfötunum.

Hér er þrautin frá því í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á jóla­dag fyrir 29 árum – 25. des­em­ber 1991 – hélt þessi maður ræðu í sjón­varpið í heima­landi sínu. Hér má sjá skjá­skot af ræðu hans. Hvað til­kynnti mað­ur­inn í þeirri ræðu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Justin Trudeau heitir for­sæt­is­ráð­herra í ákveðnu vest­rænu ríki. Hann er fæddur á jóla­dag og heldur í dag upp á 49 ára afmælið sitt heima í ... hvaða landi?

2.   Faðir Trudeaus var líka for­sæt­is­ráð­herra í sama landi, nær sam­fellt í 15 ár. Á þeim tíma var kona hans, móðir Justins Trudeaus, líka mikið í sviðs­ljós­inu, en hún þótti hel­stil óþekk af for­sæt­is­ráð­herra­frú að vera. Einu sinni stakk hún til dæmis af með The Rolling Stones. Seinna var hún greind með bípolar-sjúk­dóm og hefur fjallað um sjúk­dóm sinn í bókum og á ýmsum öðrum vett­vangi. Hvað heitir hún? – og hér er spurt um for­nafn hennar.

3.   Milli hvaða tveggja svæða er Ber­ings­sund?

4.   Gásir hétu versl­un­ar­staður á Íslandi á fyrri öldum. Verslun er þar löngu aflögð en stað­ur­inn er rétt hjá núver­andi þétt­býl­is­stað, og honum af stærri gerð­inni. Hvaða þétt­býl­is­staður er það?

5.   Í hvaða landi er sú borg sem í gömlum íslenskum bókum var nefnd Rúðuborg, en heitir nú Rouen á landa­kortum?

6.   Hver er menntun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra?

7.   Matador heitir íslenska útgáfan af frægu borð­spili, sem í útlöndum heitir ...?

8.   Matador er líka nafnið á frægri sjón­varps­s­eríu sem gerð var 1978-1982 og sýnd við miklar vin­sældir víða, meðal ann­ars á Íslandi. Frá hvaða landi kom þessi sería?

9.   En hvaða þýðir ann­ars orðið „mata­dor“ yfir­leitt í erlendum málum?

10.   Jol heitir þorp eitt í heimi hér. Það er ekki stórt, því þar búa aðeins 32 mann­eskjur úr sjö fjöl­skyldum í örfáum húsum. Þorpið er skammt frá landa­mærum bæði Armeníu og Tyrk­lands, en í hvaða landi?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kanada.

Margaret Trudeau stígur skottís í Studio 54.

2.   Margaret.

3.   Síberíu og Alaska. Það má nefna Rússland/Asíu og Banda­ríkin/Norður-Ameríku.

4.   Akureyri.

5.   Frakk­landi.

6.   Hann er dýra­læknir.

7.   Monopoly.

8.   Danmörku.

9.   Nauta­bani.

10.   Íran. Hér er loft­mynd af þessu litla þorpi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri mynd sýnir Mikhaíl Gor­bat­sjov til­kynna um afsögn sína sem leið­togi Sov­ét­ríkj­anna er fól um leið í sér að Sov­ét­ríkin voru lögð niður. 

Seinni myndin sýnir Stein­unni Ólínu. Hún er þarna í hlut­verki sínu í sjón­varps­þátt­unum Föngum, en óþarfi er að vita það.

***

Og hér er aftur hlekkur á aðfanga­dags­þraut­ina. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár