242. spurningaþraut: Spurningar sem allar snúast um aðfangadag

242. spurningaþraut: Spurningar sem allar snúast um aðfangadag

Hér er hlekkur á Þor­láks­messu­spurn­ing­arnar.

***

Allar spurn­ing­arnar í dag snú­ast á ein­hvern hátt um aðfanga­dag.

Karlinn á mynd­inni hér að ofan fædd­ist á aðfanga­dag árið 1868 í bæ sem þá til­heyrði Þýska­landi. Eins og sjá má á mynd­inni var hann skák­maður, og varð heims­meist­ari 1894. Reyndar hefur eng­inn skák­maður verið heims­meist­ari lengur en hann eða í 27 sam­fleytt, allt til 1921. Hvað hét hann?

***

1.   Á aðfanga­dag 1968 fylgd­ist heim­ur­inn agn­dofa með því þegar banda­rískt geim­far smeygði sér á braut um tunglið eftir lang­ferð frá jörð­inni. Þetta var mikið afrek og nú stytt­ist óðum í að menn væru að vappa um tunglið. Hvað nefnd­ist þetta fyrsta mann­aða geim­far á braut um tungið?

2.   Á aðfanga­dag til­tekið ár gerð­ist það að her­menn úr and­stæðum fylk­ingum sem áttu í harð­vít­ugu stríði hættu skyndi­lega að berj­ast og héldu eins­konar sam­eig­in­lega jóla­há­tíð á einskis­manns­land­inu svo­kall­aða, milli víg­lína þeirra. Þetta þótti fögur stund, en dag­inn eftir héldu þeir áfram að berj­ast. Í hvaða styrj­öld gerð­ist þetta?

3.   Anthony Fauci, yfir­maður smit­sjúk­dóma­varna Banda­ríkj­anna, verður átt­ræður í dag. Hann var skip­aður í núver­andi stöðu sína árið 1984 og hversu mörgum Banda­ríkja­for­setum hefur hann þá þjónað í starfi?

4.   Ryan nokkur Seacrest verður hins vegar 46 ára í dag. Hann er sjón­varps­maður og kunn­astur fyrir að hafa verið kynnir í einum vin­sælasta sjón­varps­þætti Banda­ríkj­anna (og heims­ins) frá byrjun. Hvað heita þeir þættir?

5.   Hvaða jóla­sveinn kemur til byggða á aðfanga­dag?

6.   Heimir Sindra­son tann­læknir heldur í dag upp á 76 ára afmæli sitt. Heimir er tón­skáld, auk þess að starfa sem tann­læknir í ára­tugi, og einkum frægur fyrir lag sem hann samdi við ljóð eftir Tómas Guð­munds­son. Hvað heitir það lag?

7.   Að morgni aðfanga­dags 1818 kom séra Joseph Mohr að máli við Franz Gruber tón­list­ar­kenn­ara í bænum Obernd­orf í Aust­ur­ríki, fékk honum texta og bað hann að semja tón­verk við text­ann. Gruber tók til óspilltra mál­anna og þá um kvöldið var verkið til­búið og var flutt í Niku­lás­ar­kirkj­unni í Obendorf. Hvað nefn­ist þetta tón­verk?  

8.   Á aðfanga­dag árið 1613 varð eitt skelfi­leg­asta slys Íslands­sög­unnar þegar fjöldi fólks á leið til jóla­messu varð fyrir snjó­flóði í firði einum. Talið er að 50 manns hafi látið lífið í flóð­inu. Í hvaða firði gerð­ust þessi ósköp?

9.    Á aðfanga­dag 1934 var tek­inn upp nýr siður í jóla­haldi Íslend­inga. Hann lét ekki mikið yfir sér í fyrstu, en smátt og smátt hefur hann vaxið svo og dafnað að hann hefur nú fært sig yfir á dag­ana fyrir jól – því aðfanga­dagur dugar ekki lengur einn. Mörgum finnst siður þessi ómissandi við hrein­gern­ingar og annað sýsl heima fyrir síð­ustu dægrin fyrir jól, ekki síst á Þor­láks­messu. Hvað er hér átt við?

10.   Þann 24. des­em­ber árið 1956 komu til Íslands 52 flótta­menn á vegum Rauða kross­ins. Þá var sjald­gæft að Íslend­ingar tækju við flótta­mönnum, hvað þá svo stórum hópi, en þessir flótta­menn höfðu um mán­aða­mótin októ­ber-nóv­em­ber upp­lifað miklar hörm­ungar í landi sínu. Flestir von­ast eftir betri tíð í land­inu, en von­irnar rætt­ust aldeilis ekki, og því höfðu margir lagt á flótta. Hvaða land var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Þann 24. des­em­ber 1871 var frum­flutt ein af fræg­ustu óperum 19. ald­ar­innar. Þótt óperan sé evr­ópsk í húð og hár og eftir einn af allra fræg­ustu óperu­smiðum Evrópu ef ekki bara þeim allra fræg­asta, þá var hún reyndar frum­flutt á fjar­lægum slóðum, enda ger­ist hún líka á þeim fjar­lægum slóðum. Hvaða ópera var þetta?

 ***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Apollo átt­undi.

2.   Heims­styrj­öld­inni fyrri.

3.   Sex – Reagan, George H.W. Bush, Clinton, George W. Bush, Obama, Trump.

4.   Amercian Idol.

5.   Kerta­sníkir.

6.   Hótel Jörð.

7.   Heims um ból.

8.   Siglu­firði.

9.   Jóla­kveðjur Rík­is­út­varps­ins.

10.   Ung­verja­land.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Heims­meist­ar­inn í skák hét Lasker. Ég get ekki stillt mig um að birta hér alla mynd­ina því and­stæð­ingur hans í þess­ari skák var eng­inn annar en Kúbu­mað­ur­inn José Raul Capablanca, sem vann tit­il­inn af Lakser 1921.

Myndin mun vera tekin á alþjóð­legu móti í Moskvu 1925.

Óperan sem frum­sýnd var á aðfanga­dag 1871 var Aida eftir Verdi. Frum­sýn­ingin fór fram í Egifta­landi, þar sem óperan ger­ist.

***

Hlekkur á Þor­láks­messu spurn­ing­arnar síðan í gær.

***

Að svo mæltu óska ég gleði­legra jóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár