240. spurningaþraut: Tíu spurningar og tveim betur um njósnara

240. spurningaþraut: Tíu spurningar og tveim betur um njósnara

Hér er hlekkur á þraut­ina frá því í gær.

***

Auka­spurn­ingar:

Konan hér að ofan er lík­lega fræg­asti kvennjósn­ari sög­unnar, þó svo óvíst sé hve miklar eða hættu­legar njósnir hennar voru í raun og veru. Hvað nefn­ist hún yfir­leitt?

***

1.   „Líf ann­arra“ hét fræg kvik­mynd sem frum­sýnd var árið 2006. Þar sagði frá manni sem hafði það hlut­verk að njósna um líf sam­borg­ara sinna fyrir leyni­þjón­ustu rík­is­ins. Hann getur á end­anum ekki á sér setið að leggja svo­lítið lið þeim, sem hann á að hlera og njósna um. Fyrir hvaða frægu leyni­þjón­ustu starf­aði þessi maður?

2.   Bernard Lee, Robert Brown, Judi Dench og nú síð­ast Ralph Fiennes hafa öll leikið yfir­mann í bresku leyni­þjón­ust­unni sem kemur við sögu í röð bíó­mynda. Yfir­mað­ur­inn sem þau leika gengur undir mjög stutt­ara­legu dul­nefni. Hvaða dul­nefni er það?

3.   NKVD nefnd­ist heldur skugga­leg leyni­þjón­usta sem talið er full­víst að hafi drýgt marga glæpi, þótt margt sé enn á huldu um starf­semi hennar. Í hvaða landi starf­aði NKVD?

4.   En í hvaða landi starfar leyni­þjón­ustan Mossad?

5.   Árið 1967 hófst sýn­ing á sjón­varps­þáttum í Banda­ríkj­unum þar sem sagði frá ævin­týrum nokk­urra útsend­ara leyni­þjón­ustu­stofn­unar er nefnd­ist IMF. Sjón­varps­þætt­irnir voru sýndir við all­miklar vin­sældir í sex ár. Árið 1996 var svo frum­sýnd bíó­mynd þar sem ein fræg­asta film­stjarna heims­ins lék útsend­ara IMF. Síðan hafa verið gerðar fimm hasar­myndir til við­bótar þar sem sama stjarna spriklar í þágu IMF. Hvað kall­ast þætt­irnir og bíó­mynd­irnar í dag­legu tali?

6.   Fyrir hvað sendur skamm­stöf­unin CIA, leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna?

7.   Hvað nefn­ast aðal­stöðvar CIA?

8.   Donald Maclean, Guy Burgess, Anthony Blunt og John Cairncross voru breskir náms­menn við háskóla í Cambridge sem gengu í þjón­ustu Sov­ét­ríkj­anna á fjórða ára­tugnum og urðu njósn­arar. Raunar voru ungu menn­irnir fimm tals­ins, og í röð­ina hér að ofan vantar þann allra fræg­asta þess­ara fimm­menn­inga. Hvað hét hann?

9.   Einn af síð­ustu leið­togum Sov­ét­ríkj­anna var um tíma yfir­maður hinnar ill­ræmdu leyni­þjón­ustu KGB. Hvað hét sá maður?

10.   Hvaða nýlátni höf­undur skrif­aði bók eftir bók þar sem njósn­a­for­ing­inn George Smiley glímdi við and­stæð­inga Bret­lands?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á árunum 1965-1970 voru „Agent 86“ og „Agent 99“ aðal­núm­erin í vin­sælli njósn­a­seríu í sjón­varpi sem runnin var undan rifjum Mel Brooks. Myndin hér að neðan er úr þeim sjón­varps­þáttum. Þau 86 og 99 áttu þessa ljóm­andi hag­an­legu skó-síma, eins og sjá má. Árið 2008 lét Steve Carell hlut­verk „Agent 86“ í grín­mynd eftir sjón­varps­þátt­unum en Anne Hathaway lék „99“. Hvað köll­uð­ust þessir þættir, ann­að­hvort á ensku eða íslensku?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Stasi, leyni­þjón­ustu Austur-Þýska­lands.

2.   M, úr James Bond-mynd­unum.

3.   Sov­ét­ríkj­unum.

4.   Ísrael.

5.   Mission: Impossi­ble.

6.   Central Intelligence Agency.

7.   Langley.

8.   Kim Philby.

9.   Andropov.

10.   Le Carré.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni er Mata Hari.

Þætt­irnir, sem neðri myndin vísar til, hétu Get Smart, eða Smart spæj­ari á íslensku. 

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár