239. spurningaþraut: „Að vera eða ekki vera, þarn'er efinn“

239. spurningaþraut: „Að vera eða ekki vera, þarn'er efinn“

Hér er hún, þrautin síðan í gær.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hvaða borg sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Lýta­læknir hefur verið í fréttum und­an­farið vegna and­stöðu sinnar við sótt­varn­ar­reglur flestar. Hvað heitir lýta­lækn­ir­inn? Hér dugar skírn­ar­nafn.

2.   Árið 2002 var nýtt sjálf­stætt ríki við­ur­kennt í Asíu, eftir að hafa átt í langri og blóð­ugri sjálf­stæð­is­bar­áttu gegn Indónesíu. Ríkið nær yfir hluta af með­al­stórri eyju og nokkrar nálægar eyjar líka. Hvað heitir ríkið?

3.   Edda er nýhætt að vinna og dauð­leið­ist tíð­inda­laus til­vera eft­ir­launa­þeg­ans. Hún grípur því feg­ins hendi tæki­færi til að leysa erfið saka­mál. Fyrsta bókin um ævin­týri hennar heitir Konan í blokk­inni. Hvaða höf­undur skrif­aði þá bók og fleiri um Eddu?

4.   Fót­bolta­maður einn frá Akureyri hóf feril sinn með Þór þar í bæ, reyndi fyrir sér erlendis, spil­aði nokkur ár með Val en mest með KR. Hann skor­aði í sínum fyrsta lands­leik gegn Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum 1994, en lands­liðs­fer­ill­inn var skemmri en efni stóðu til vegna meiðsla. Hver er þessi fót­bolta­maður?

5.    Hvað heitir kon­ungur Sví­þjóðar? Ekki er nauð­syn­legt að kunna númer hans.

6.   Hvað heitir drottn­ing hans?

7.   Í apríl í fyrra vakti heims­at­hygli þegar eldur kvikn­aði í víð­frægri bygg­ingu þar sem unnið var að við­haldi. Miklar skemmdir urðu á bygg­ing­unni, einkum þaki hennar, og mun víst taka mörg ár að gera við allt saman. Hvaða bygg­ing var þetta?

8.   Hvaða per­sóna sagði: „Að vera eða ekki vera, þarn'er efinn“?

9.   Sigvaldi Kalda­lóns var læknir og tón­skáld. Hvar er það Kaldalón sem hann kenndi sig við?

10.   Á Twitter og Instram kallar kona ein sig Harmsögu, þótt hún sé raunar kunn fyrir flest annað en að harma sinn hlut. Þvert á móti þykir hún sannur gleði­gjafi. Hver er Harmsaga?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Þessi ungi maður lést aðeins 21s að aldri árið 1832, svo honum vannst ekki tími til að afreka margt. Á sínum tíma var hann þó víð­frægur og vel með honum fylgst, en það var fyrst og fremst af því hann átti svo frægan pabba. Hver var pabb­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Elísabet. Hún er raunar Guð­munds­dóttir.

2.   Austur-Tímor.

3.   Jónína Leós­dóttir.

4.   Guð­mundur Bene­dikts­son.

5.   Karl Gústaf.

6.   Sylvia

8.   Notre Dame-kirkjan í París.

8.   Hamlet.

9.   Við Ísa­fjarð­ar­djúp. „Á Vest­fjörðum“ er ekki nóg.

10.   Saga Garð­ars­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Borgin er New York.

Faðir unga manns­ins var Napoleon Bónap­arte Frakka­keis­ari

***   

Gleym ei þraut­inni frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár