238. spurningaþraut: Vinir, kviðdómur, Mamma Mía og ríki að velli lagt

238. spurningaþraut: Vinir, kviðdómur, Mamma Mía og ríki að velli lagt

Gær­dags­þrautin, hér er hún.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Ljós­mynd­ina hér að ofan tók ljós­mynd­ar­inn Robert Capa og var hún lengi talin í hópi mögn­uð­ustu ljós­mynda 20. aldar. Síðan kvikn­uðu raddir um að myndin kynni að hafa verið svið­sett en um það verður ekki sagt hér. En hvað sem því líður, í hvaða stríði var myndin tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Amerísku sjón­varps­þætt­irnir Friends voru fjarska vin­sælir á árunum 1994-2004. Í hvaða banda­rísku borg gerð­ust þeir?

2.   Hversu margir sitja í kvið­dómi á Englandi?

3.   Baloo, Bagheera, Shere Khan, Kaa og Akela. Hvar koma þessi fyr­ir­bæri við sögu?

4.   Hver lék fyrir fáeinum árum aðal­kven­hlut­verkið í söng­leiknum Mamma Mia í Borg­ar­leik­hús­inu?

5.   Hvaða öfl­uga ríki var að velli lagt árið 1521 svo algjör­lega að  það hvarf gjör­sam­lega úr sög­unni og hefur aldrei verið end­ur­reist á nokkurn hátt?

6.   Hvers vegna varð Agnes Magn­ús­dóttir fræg fyrir tveim öldum tæpum?

7.   Af hvaða reglu er nunnu­klaustrið í Hafn­ar­firði?

8.   Hver er stærsta borgin í Evrópu sem árin Spree fellur um?

9.   Íslenskur rit­höf­undur á 20. öld naut mik­illa vin­sælda um tíma, þótt eitt­hvað hafi dregið úr þeim í bili að minnsta kosti. En hann var líka frægur fyrir hve oft hann gekk í hjóna­bönd. Hvað hét mað­ur­inn?

10.   Til er bók sem heitir Blóð­hófnir. Hver skrif­aði hana?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Hér að neðan

má sjá leikkon­una Elizabeth Taylor. Í hvaða hlut­verki fékk hún að klæð­ast þessum snotra bún­ingi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   New York.

2.   Tólf.

3.   Persónur (dýr) í bók­inni Skóg­ar­líf (Jungle Book) og þeim kvik­myndum og teikni­myndum sem eftir bók­inni hafa verið gerðar. „Vinir Mowglis“ er líka rétt.

4.   Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir. Gælu­nafnið Hansa dugar líka.

5.   Ríki Azteka í Mexíkó. Nefna verður Azteka, ekki dugar að tala um „ein­hverja Indíána“.

6.   Hún var dæmd fyrir morð og tekin af lífi. Um smá­at­riði máls­ins þurf­iði ekki að vita að þessu sinni.

7.   Karmel- eða Kar­mel­íta-reglu.

8.   Berlín.

9.   Krist­mann Guð­munds­son.

10.   Gerður Kristný.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mynd Capa var tekin í spænska borg­ara­stríð­inu.

Frú Taylor er þarna í hlut­verki Cleopötru drottn­ingar í Egifta­landi. Nafn Cleopötru dugar.

***

Svo er hún hér gær­dags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár