237. spurningaþraut: Liverpool, Þorvaldur, Nanna, Pliníus eldri, Síbelíus

237. spurningaþraut: Liverpool, Þorvaldur, Nanna, Pliníus eldri, Síbelíus

Ef þið smellið hér, þá birt­ist þrautin síðan í gær eins og fyrir galdra.

***

Fyrri auka­spurn­ing: 

Hvað heitir tog­ar­inn sem sjá má hluta af á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Fót­bolta­fé­lagið Liverpool er sig­ur­sælasta fót­bolta­fé­lagið í Liverpool. En í borg­inni eru fleiri fót­bolta­fé­lög. Hvað heitir það næst sig­ur­sælasta þar í borg?

2.   Árum saman hefur Þjóð­leik­húsið haldið úti sama barna­leik­riti á aðvent­unni í des­em­ber. Þangað til núna að sýn­ingar falla niður vegna kóf­s­ins. Höfundur leik­rits­ins er Þor­valdur Þor­steins­son. Hvað heitir það?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Armeníu?

4.   Hver er kvaðratrótin af 81?

5.    Hvaða íslenski rit­höf­undur skrif­aði bók­ina Ofvitann?

6.   Hverrar þjóðar var tón­skáldið Jean Sibelius?

7.   Í hvaða hljóm­sveit syngur Nanna Bryndís Hilm­ars­dóttir og spilar á gítar?

8.   Hvað kall­ast haf­straum­ur­inn sunnan úr höfum sem gjarnan er sagður halda hita á Íslandi?

9.   Fyrir hvað komst Ása Finns­dóttir á spjöld sög­unnar á Íslandi?

10.   Árið 79 eftir Krist lést róm­verski emb­ætt­is­mað­ur­inn og nátt­úru­spek­ing­ur­inn Pliníus eldri mjög svip­lega. Til er lýs­ing á dauða­stund hans eftir nafna hans og frænda og þar kemur fram að lík­lega urðu eitr­aðar loft­teg­undir honum að bana. Hvað var eig­in­lega að ger­ast?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða stríði um mið­bik 20. aldar er þessi ljós­mynd tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Everton.

2.   Leitin að jól­unum.

3.   Jerevan.

4.   9.

5.   Þór­bergur Þórð­ar­son.

6.   Finnskur.

7.   Of Monsters and Men.

8.   Golfstraum­ur­inn.

9.   Hún var fyrsta sjón­varps­þulan.

10.   Eldgos í Vesúvíusi. Gosið sem færði Pompeii og fleiri bæi á kaf í eitr­aða ösku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Togarinn er að sjálf­sögðu Heinaste sem Samherji hélt úti til veiða við Namibíu og kemur víða við sögu í Sam­herj­a­málum.

Hér má sjá hann betur:

Heinaste siglir á sjónum

Neðri ljós­myndin var aftur á móti tekin í Kóreu­stríð­inu, enda er það fáni Norður-Kóreu sem sjá má veifað.

***

Og ef þið hafið enn gleymt þraut­inni síðan í gær, þá er að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár