236. spurningaþraut: Vigdís Finnbogadóttir, Buck Mulligan, Söngur Gollums

Hér er þrautin síðan í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir fjallið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Fyrsta Star Wars-myndin var frum­sýnd 1977 og hét þá ein­fald­lega Star Wars. Sú næsta kom þrem árum síðar. Hvað heitir sú mynd?

2.   Carrie Fisher lék aðal­kven­hlut­verkið í fyrstu Star Wars mynd­unum. Hvað hét per­sóna hennar?

3.   „Stately, plump Buck Mulligan came from the stair­head, bear­ing a bowl of lather on which a mir­ror and a razor lay crossed.“ – Þetta mætti þýða laus­lega svo: „Hátign­ar­lega steig hinn sæl­legi Buck Mulligan inn af stiga­pall­inum hald­andi á skál með sápu­löðri sem speg­ill og rak­vél lágu ofan á í kross.“ Hver skrif­aði þá skáld­sögu sem hefst á þessa leið og þótti marka tíma­mót í skáld­sagna­gerð?  Hún kom út á ensku árið 1922.

4.   Hvar eru Peblinga­vatn, Heilags Jörg­ens­vatn og Svörtu­stíflu­vatn?

5.   Hversu margir eru Bretar? Hér má muna um það bil fjórum millj­ónum til eða frá.

6.   Hvað mælir baró­met?

7.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Namibíu?

8.   Vigdís Finn­boga­dóttir á eina dóttur. Hvað heitir hún? Hér dugir skírn­ar­nafnið.

9.   Íslensk söng­kona söng lagið Gollum's Song í mynd númer tvö í þrí­leiknum Hringa­drott­ins­sögu um síð­ustu alda­mót. Myndin hét The Two Towers and hver var söng­konan?

10.   Af hvaða hvala­teg­und var Moby Dick?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni? Eft­ir­nafnið dugar.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   The Empire Strikes Back. „Heims­veldið snýr vörn í sókn“ hljómar ekki alveg eins vel.

2.   Leila prinsessa.

3.   Joyce. Skáldsagan heitir Ulysses frá 1922.

4.   Í Kaup­manna­höfn. Danmörk dugar ekki.

5.   67,8 millj­ónir. Rétt telst vera allt frá 62 til 72.

6.   Loft­þrýst­ing.

7.   Windhoek.

8.   Ástríður.

9.   Emilíana Torrini.

10.   Búr­hvalur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fjallið heitir Ararat. Það er í Tyrk­landi þótt bygg­ing­arnar á mynd­inni séu raunar í Armeníu.

Konan hét Clementine Churchill, og hér má sjá hana ásamt Winston eig­in­manni sínum.

***

Gleymd­uði nokkuð þraut­inni síðan í gær?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár