235. spurningaþraut: Hver braust út úr enni föður síns í fullum herklæðum?

235. spurningaþraut: Hver braust út úr enni föður síns í fullum herklæðum?

Þraut gær­dags­ins!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Maðurinn á mynd­inni hér að ofan virð­ist frekar argur í skapi. Hvers vegna er hann það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvar fædd­ist Napóleon Bonap­arte?

2.   Hvað heitir vara­for­seti Banda­ríkj­anna?

3.   Svo vildi til að par eitt átti von á barni. Þegar karl­inn frétti hjá spá­mönnum að barnið yrði honum æðra, þá sá hann ekki annað ráð en gleypa barns­móður sína. Barnið, sem var dóttir, hélt hins vegar áfram að vaxa og dafna í lík­ama föður síns og á end­anum braust stúlkan út úr enni hans, og það meira að segja í fullum her­klæðum. Þrátt fyrir þessa óheppi­legu byrjun á kynnum þeirra feðgina, þá fór yfir­leitt vel á með þeim síðar, og hún steypti honum reyndar ekki af stóli. Hún varð hins vegar kunn fyrir góða dóm­greind, still­ingu og umfram allt visku. Hvað hét hún?

4.   Kona nokkur frá Banda­ríkj­unum hefur vakið athygli hér á landi fyrir til­raunir sínar til að reisa flug­fé­lag á rústum Wow Air. Hvað heitir hún? Hér dugar eft­ir­nafn.

5.   Árið 1955 tóku Banda­ríkja­menn í notkun háfleyga njósn­a­flug­vél sem nú, 65 árum seinna, er enn í notkun. Vélin komst ræki­lega í frétt­irnar þegar ein slík var skotin niður yfir Sov­ét­ríkj­unum árið 1960. Hvað kall­ast vélin?

6    Hvað heitir nú það ríki sem áður var oft kallað Abyss­inía?

7.   Í hvaða landi er borgin Turku?

8.   Jónas Hall­gríms­son fædd­ist á bænum Hrauni í dal er nefn­ist ...?

9.   Árið 1558 tók drottn­ing ein við völdum á Englandi og sat síðan á valda­stóli í rétt tæp 45 ár. Hvað hét hún?

10.   Móðir drottn­ingar þess­arar hafði verið háls­höggvin þegar stúlkan var aðeins tveggja ára. Hvað hét móð­irin?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að neðan hét Anna McNeill Whistler. Hún var lítt fram­hleypin í líf­inu en er þó býsna kunn, því hún varð inn­blástur að frægu lista­verki. Hvers konar lista­verki?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Á Korsíku.

2.   Mike Pence.

3.   Aþena.

4.   Ballarin.

5.   U-2.

6.   Eþíópía.

7.   Finn­landi.

8.   Öxnadal.

9.   Elísabet.

10.   Anna Boleyn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd sýnir Móse ofsareiðan Ísra­els­mönnum af því þeir höfðu lagt guð á hill­una og í stað­inn farið að dansa kringum gull­kálfinn. Nauð­syn­legt er að nefna gull­kálfinn.

Konan á neðri mynd­inni var inn­blástur á mál­verki sem oft­ast er kallað „Móðir Whistlers“ enda var það málað af syni kon­unnar, James Whistler.

„Upp­still­ing í gráu og svörtu, númer eitt“ heitir myndin í raun og veru. Hún er frá 1871.

***

Og þraut gær­dags­ins, hlekkur á hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár