234. spurningaþraut: Hver lét mynda sig á hvítum hesti?

234. spurningaþraut: Hver lét mynda sig á hvítum hesti?

Hér er þrautin frá í gær, halló!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina að ofan. Við hvaða tæki­færi er hún tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða íslenski grínisti kemur nú fram á Netflix?

2.   Hvað heita sænska stúlkan sem sló í gegn árið 2019 fyrir bar­áttu sína gegn ham­fara­hlýnun?

3.   Hvað er við­ur­nefni Ingólfs Þór­ar­ins­sonar?

4.   Hvaða breski kóngur á ofan­verðri 18. öld varð geð­veikur, að minnsta kosti á stundum?

5.   Sesselja Hreindís Sig­munds­dóttir fædd­ist 1902 og þegar hún var tæp­lega þrí­tug beitti hún sér fyrir að ákveð­inn hlutur var stofn­aður, reistur eða settur af stað. Hvað var það?

6.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Djakarta?

7.   Í hvaða sæti er Ísland á lista yfir stærð eyja í ver­öld­inni – ef Ástralía er ekki talin með? Er eyjan okkar sú 8. stærsta, 18. stærsta, 28. stærsta eða 38. stærsta í heimi?

8.   Geir Vídalín var val­inn biskup í Skál­holti árið 1796. Hann and­að­ist 1823. Hvað var helst merki­legt við hans bisk­ups­tíð?

9.   Fyrir hvað eru blóð­hundar einkum kunnir?

10.   Í hvaða inn­haf fellur Níl?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Sú var tíð að kóngar og keis­arar og aðrar slíkar silki­húfur sótt­ust eftir að vera mynd­aðar eða mál­aðar á stæði­legum hvítum hesti. Það átti að sýna tign þeirra og göfgi, enda fátt glæsi­legra en hvítir gæð­ingar. Þetta hefur dottið svo­lítið úr tísku, en í fyrra birt­ist þó slík mynd af ákveðnu fyr­ir­menni á hvítum stóð­hesti. Hver er þarna á hesti sínum á fjall­stoppi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ari Eldjárn.

2.   Greta Thunberg.

3.   Veðurguð.

4.   Georg 3. Hafa verður núm­erið rétt.

5.   Sól­heimar í Gríms­nesi.

6.   Indónesía.

7.   Ísland er 18. stærsta eyja heims­ins.

8.   Fyrsti bisk­upinn síðan í árdaga sem var biskup yfir öllu Íslandi, því hann varð biskup á Hólum ári eftir að tekið við í Skál­holti, og svo flutti sam­einað bisk­ups­dæmi til Reykja­víkur. Að nefna bara Reykja­vík er ekki nóg, fólk verður líka að nefna sam­einuð bisk­ups­dæmin.

9.   Mikla þef­vísi, sporrakn­ingu.

10.   Mið­jarð­ar­haf.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri:  Þetta er Bjöggi að syngja lagið Núna í Eurovision 1995. Óneit­an­lega virð­ist til­standið í leik­mynd hafa auk­ist síðan þá. „Bjöggi“ og „Eurovision“ dugar til að fá rétt.

Seinni:  Þetta er Kim leið­togi Norður-Kóreu.

***

Og aftur hlekkur á gær­dags­þraut­ina.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár