233. spurningaþraut: Hver gerir ofsafengnar skepnur úr karlmönnum, píslarvotta úr konum og vanskapnaði úr börnum?

233. spurningaþraut: Hver gerir ofsafengnar skepnur úr karlmönnum, píslarvotta úr konum og vanskapnaði úr börnum?

Hér er þraut 232 sem birt­ist í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ár gerð­ist það sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku var val­inn vestur í Banda­ríkj­unum 18 manna hópur til að vinna sér­stakt verk­efni, sem nú hefur ekki verið unnið í tæp 50 ár. Um er að ræða 9 konur og 9 karlar. Eftir 3-4 ár verða ein kona og einn karl valin úr þessum hópi til að vinna hið til­tekna verk. Hvað er það?

2.   Manzanares heitir fljót eitt sem rennur um evr­ópska höf­uð­borg. Hver er sú borg?

3.   Hvað eru hin svo­nefndu Magellan-ský?

4.   Hver var for­seti Alþingis á undan Stein­grími J. Sig­fús­syni?

5.   „[Þessi drykkur] gerir mann brjál­aðan og glæp­sam­legan, kveikir floga­veiki og berkla og hefur drepið þús­und Frakka. Hann gerir ofsa­fengnar skepnur úr karl­mönnum, písl­ar­votta úr konum og van­skapn­aði úr börnum. Hann rýfur og eyði­leggur fjöl­skyldu­líf og ógnar fram­tíð mann­kyns­ins.“ Svo var skrifað um til­tek­inn drykk í Frakk­landi í byrjun 20. aldar og drykk­ur­inn var svo bann­aður þar í landi 1914 vegna þess hve ofsa­fengin áhrif hann þótti hafa á neyt­endur. Það bann hélt þó ekki nema ákveð­inn tíma. Nú er víð­ast hægt að fá drykk­inn, að minnsta kosti ef menn leggja sig fram. Hvaða drykkur er þetta?

6.   „Þegar pip­ar­kökur bak­ast, köku­gerð­ar­maður tekur fyrst af öllu steik­ar­pott­inn og eitt kíló ...“ af hverju?

7.   Hvaða höf­uð­borg í sjálf­stæðu ríki er næst Reykja­vík? Það er sem sé hvorki átt við höf­uð­staði Græn­lands né Færeyja.

8.   Á 18. öld gerði Skotinn James Watt end­ur­bætur á til­teknum hlut sem menn höfðu verið að þróa í rúma öld, og urðu end­ur­bætur hans til þess að hlut­ur­inn varð mun brúk­legri en áður – og sló ræki­lega í gegn, enda nota­gildi hans geysi­legt. Hvaða hlutur var þetta?

9.   Hvað heitir verð­andi vara­for­seti Banda­ríkj­anna?

10.   Hvað eru rús­ínur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta? Skírn­ar­nafn eða -nöfn duga.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Stíga fæti á tunglið.

2.   Madrid.

3.   Stjörnu­þokur. 

4.   Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir. Skírn­ar­nöfn hennar duga sem rétt svar.

5.   Absint, öðru nafni mal­urt­ar­brenni­vín.

6.   Margarín.

7.   Dublin.

8.   Gufuvél.

9.   Kamala Harris.

10.   Þurrkuð vín­ber.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Styttan af Saddam Hussein var felld 2003.

Sara Björk fyr­ir­liði kvenna­lands­liðs­ins í fót­bolta.

***

Og þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár