232. spurningaþraut: Hvar er eyjan Gunna og hvað er Solanum tuberosum?

232. spurningaþraut: Hvar er eyjan Gunna og hvað er Solanum tuberosum?

Þrautin frá í gær!

***

Auka­spurn­ingar.

Myndin hér að ofan sýnir gröf banda­ríska tón­list­ar­manns­ins Jim Morrison, söngv­ara The Doors. Þetta er ein „vin­sælasta“ gröf nokk­urs tón­list­ar­manns í heimi. Í hvaða borg er þessi gröf?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í hvaða litla Evr­ópu­ríki er höf­uð­borgin Vaduz?

2.   Róm­ar­keis­ar­inn Gaius Caesar Augustus Germanicus er lang­þekkt­astur eða alræmdastur undir við­ur­nefni sínu. Það var reyndar frekar sak­leys­is­legt og ókeis­ara­legt. Hvað er sá slöttólfur kall­aður?

3.   Solanum tuber­osum er lat­neskt fræði­heiti á fjöl­ærri jurt af nátt­skugga­ætt, sem er gríð­ar­lega mikið ræktuð, einkum til að nálg­ast „sterkju­rík hnýði á neð­an­jarð­ar­renglum“, eins og það er orðað á íslensku Wikipedia. Hvað kall­ast Solanum tuber­osum á okkar ylhýra máli?

4.   Hvar er eyjan Gunna? Hér þarf nokkra nákvæmni til.

5.   Saab hét bíla­fram­leið­andi sem starf­aði frá 1945 og þangað til fyr­ir­tækið fór á haus­inn upp úr 2010. Frá hvaða landi kom Saab?

6.   Hvað heitir nesið milli Breiða­fjarðar og Faxaflóa?

7.   Hvern drap Lee Harvey Oswald eftir því sem best er vitað?

8.   En hvern drap Jack nokkur Ruby?

9.   Tveir skólar í Reykja­vík eru kenndir við þær Eddu Scheving og Sigríði Ármann. Hvað er kennt í þessum skólum?

10.   Hvað hét fyrsti land­læknir á Íslandi?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Hér að neðan má sjá áströlsku leikkon­una Elizabeth Dibecki. Hún fór með miðl­ungs hlut­verk í kvik­mynd Baltasars Kormáks, Everest, fyrir nokkrum árum. Hægt og bít­andi hefur hún verið að feta sig upp á stjörnu­him­in­inn en á næsta ári mun frægð hennar taka lang­stökk fram á við. Hvers vegna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Liechtenstein.

2.   Caligula sem þýðir „litla stíg­vél“ eða eitt­hvað álíka.

3.   Kart­öflur.

4.   Út af Skotlands­ströndum. Gunna telst vera ein Suð­ur­eyja, en Skotland dugar. Bretland er aftur á móti ekki nógu nákvæmt svar.

5.   Svíþjóð.

6.   Snæ­fells­nes.

7.   John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seta.

8.   Lee Harvey Oswald.

9.   Ballett.

10.   Bjarni Pálsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Svar við þeirri fyrri: París.

Svar við þeirri seinni: Hún mun leika Díönu prinsessu í 5. hluta sjón­varps­s­er­í­unnar The Crown.

***

Og gleymið eigi þraut­inni frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár