227. spurningaþraut: Stærsti hver heims heitir Steikarpönnuvatn. Hvar er hann?

227. spurningaþraut: Stærsti hver heims heitir Steikarpönnuvatn. Hvar er hann?

Hér er 226. spurn­inga­þrautin.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aða­spurn­ingar:

1.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Varsjá?

2.   Hver býr í turn­inum í Kar­dimommubæ?

3.   Hver er stærsti þétt­býl­iskjarn­inn á Fljóts­dals­hér­aði?

4.   Stærsti hver heims­ins kall­ast Steik­arpönnu­vatn og er nærri fjórir hekt­arar að stærð. Í hvaða landi er þessi geysistóri hver?

5.   Í hvaða landi var Knútur ríki upp­haf­lega kon­ungur?

6.   Hvaða mynd hvarf úr Louvre-safn­inu í París árið 1911?

7.   Hver sendi frá sér plöt­una Blackstar árið 2016, rétt fyrir and­lát sitt?

8.   Um 1530 verður fyrst vart við leik nokkurn suður á Ítalíu sem kall­að­ist „Il Giuoco del Lotto d'Italia“. Hann var þá ekki ósvip­aður því sem við köllum nú lottó, en þegar leik­ur­inn flutt­ist til Frakk­lands var bætt við spilum, táknum og tölum. Leik­ur­inn þró­að­ist svo tölu­vert í Frakk­landi, en tók á sig nútíma­mynd sína í Banda­ríkj­unum fyrir tæpum 100 árum. Í Atlanta var leik­ur­inn spil­aður með baunum og þær eru taldar hafa gefið leiknum nafn, þótt í nokkuð afbök­uðu formi sé. Eitt sér­kenni leiks­ins er að fjöldi þátt­tak­enda er í raun ótak­mark­aður. Hvað heitir þessi leikur?

9.   Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir er for­maður í félagi nokkru eða sam­tökum, og hún fagn­aði nýlega hug­myndum þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um að rann­sókn færi fram á skjól­stæð­ingum hennar og félags­mönnum. Hvar er Þuríður Harpa for­maður?

10.   Á hvaða vatni gekk Jesúa frá Nasaret sam­kvæmt frá­sögn guð­spjall­anna?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Póllandi.

2.   Tóbías.

3.   Egils­staðir.

4.   Á Nýja-Sjálandi.

5.   Danmörku.

6.   Mona Lisa.

7.   David Bowie.

8.   Bingó.

9.   Öryrkja­banda­lags Íslands.

10.   Genes­aret-vatni, öðru nafni Galí­leu­vatni.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Bogi Ágústs­soní upp­hafi frétta­manns­fer­ils­ins.

Á fyrri mynd­inni, hér efst, má sjá kvik­mynda­stjörn­una Bette Davis.

Á neðri mynd­inni sést hluti af and­liti Boga Ágústs­sonar frétta­manns.

***

Þrautin frá í gær!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár