226. spurningaþraut: Hver hélt tónleika á Suðurskautslandinu? og fleira

226. spurningaþraut: Hver hélt tónleika á Suðurskautslandinu? og fleira

Gær­dags­þrautin er hér.

***

Auka­spurn­ingin fyrri:

Á þessum degi fyrir sjö árum, 8. des­em­ber 2013, hélt vin­sæl hljóm­sveit tón­leika fyrir 120 vís­inda­menn og blaða­menn á Suð­ur­skauts­land­inu. Þar með varð hljóm­sveitin sú fyrsta – og hingað til eina – sem hefur troðið upp í öllum heims­álf­unum. Hvað heitir þessi hljóm­sveit sem er svo hörð af sér?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir þjálf­ari karla­liðs Totten­ham í fót­bolta?

2,   Á hvaða eyju í Mið­jarð­ar­hafi var Napoleon Bonap­arte hafður í stofu­fang­elsi eftir að hann var hrak­inn frá völdum í Frakk­landi 1814?

3.   En á hvaða eyju end­aði hann svo ári seinna?

4.   Svæði 51 eða Area 51 er eyði­leg spilda í Banda­ríkj­unum sem her­inn ræður yfir og þar hafa áhuga­menn um geim­verur gjarnan ímyndað sér að séu falin ýmis sönn­un­ar­gögn um heim­sóknir geim­vera. Í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er þetta svæði?

5.   Þýsk hjón stýra fyr­ir­tæk­inu BioNTech, sem hefur átt mik­inn þátt í að þróa bólu­efni við kór­óna­veirunni sem veldur Covid-19 í sam­vinnu við banda­ríska fyr­ir­tækið Pfizer. Hjónin eru ættuð ... hvaðan?

6.   Fyrir tveim árum fékk ung kona frá Írak frið­ar­verð­laun Nóbels fyrir ötult starf gegn „notkun á kyn­ferð­is­of­beldi sem vopni í stríði“. Hún heitir Nadia Murad og til­heyrir trúflokki, sem stundum er tal­inn á mörkum íslams og kristni, og hefur því gjarnan verið ofsóttur af öllum. Hvað heitir trúflokk­ur­inn?

7.   Hún fædd­ist 1917 í Banda­ríkj­unum og sló í gegn sem söng­kona um tví­tugt með ein­stæða útgáfu af vöggu­ljóð­inu „A-tisket, a-tasket“. Hún varð fljót­lega heims­fræg og hlaut til dæmis við­ur­nefnið „drottn­ing jazzins“. Milli þess sem hún sinnti sínum glæsta sól­ó­ferli söng hún líka með öðrum og dúettar hennar og Louis Arm­strong urðu sögu­frægir. Hún lést 1996. Hvað hét hún?

8.   Hvað heitir stærsta stöðu­vatnið á Reykja­nesi?

9.   „Tveir þreyttir fætur toga hvern annan í takt / eftir ein­breiðum vegi sem liggur í öfuga átt. / Gróð­ur­inn grætur og þögnin hún segir svo margt. / Allt er síend­ur­tekið samt er svo mikið ósagt.“ Hver yrkir svo í nýlegu og mjög vin­sælu lagi?

10.   Á Jökuldal á Fljóts­dals­hér­aði er að finna nátt­úruperlu, sem lengi var lítt þekkt og kom ekki almenni­lega í ljós fyrr en eftir að Kára­hnjúka­virkjun var tekin í notkun og vatns­magnið í Jökulsá á Dal (eða Jöklu) snar­minnk­aði. Hvaða nátt­úruperla er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi unga stúlka?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Mourinho.

2.   Elba.

3.   St.Helena.

4.   Nevada.

5.   Tyrk­landi.

6.   Jasídar.

7.   Ella Fitzgerald.

A-tisket, a-tasket

8.   Kleif­ar­vatn.

9.   Bríet.

Bríet, Esjan

10.   Stuðla­gil.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hljóm­sveitin er Metallica.

Metallica á Suð­ur­skauts­land­inu- Þetta voru alvöru­tón­leikar.

Stúlkan heitir Michelle, bar ætt­ar­nafnið Robinson þá en Obama núna.

***

Og aftur: gær­dags­þrautin!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár