225. spurningaþraut: Dante, Boccaccio, Ming – hvaða getiði hugsað ykkur betra?

225. spurningaþraut: Dante, Boccaccio, Ming – hvaða getiði hugsað ykkur betra?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða sjón­varps­s­eríu frá því um 1970 er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Árið 1917 sett­ist eig­in­leg rík­is­stjórn að völdum á Íslandi í fyrsta sinn, en fram að því hafði verið aðeins einn ráð­herra. Í þess­ari fyrstu rík­is­stjórn voru for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og ... hver var sá þriðji?

2.   Eyjaálfa er minnsta heims­álfan í ýmsum skiln­ingi. Hversu mörg sjálf­stæð ríki til­heyra Eyjaálfu? Hér má muna einu til eða frá.

3.   En hvaða heims­álfa er ann­ars næst­minnst? – og hér er átt við flat­ar­mál.

4.   Í hvaða ríki stjórn­aði Ming-ættin?

5.   Ítalska skáldið Dante Alighi­eri orti í byrjun 14. aldar þrjú mikil kvæði um hel­víti, hreins­un­ar­eld­inn og himna­ríki. Hvað hefur bálkur Dantes verið kall­aður í heilu lagi?

6.   Sá sem fann upp á þessu skemmti­lega nafni á kvæða­bálki Dantes var annað ítalskt skáld, sem hét Boccaccio. Hann er frægur fyrir mikið prósa­verk er nefn­ist Decameron og hann lauk við 1353. Þar segja nokkur ung­menni hvert öðru skemmti­legar og lær­dóms­ríkar sögur, meðan þau eru á flótta undan ... ja, undan hverju?

7.   Ein af aðal­per­sónum sjón­varps­s­er­í­unnar Ráð­herr­ann var aðstoð­ar­maður for­sæt­is­ráð­herra. Hún hét Hrefna, en hvaða leik­kona túlk­aði hana? Hér má sleppa föður-, móður- eða ætt­ar­nafni leikkon­unnar.

8.   Í landi er borgin Kraków?

9.   En hvar er borgin Kharkiv?

10.  Árið 1959 var opnuð við Laugaveg í Reykja­vík fyrsta raun­veru­lega versl­un­ar­mið­stöðin hér­lendis. Hvað nefnd­ist hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi kona var einn fær­asti og fræg­asti arki­tekt Íslands, þótt hún starf­aði raunar erlendis mestan hluta ævinnar. Á Íslandi voru þó reist ýmis hús sem hún teikn­aði og til dæmis frægt ein­býl­is­hús við Bakka­flöt í Garðabæ sem vakti athygli um víða ver­öld. Hún lést 2017, 88 ára gömul. Hvað hét hún? Eins og í spurn­ing­unni hér að ofan dugar skírn­ar­nafn.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Atvinnu­mála­ráð­herra.

2.   Ríkin eru 14, svo allt frá 13-15 telst rétt.

3.   Evrópa.

4.   Kína.

5.   Gleði­leik­ur­inn guð­dóm­legi.

6.   Svarta dauða. „Ein­hverri far­sótt“ telst ekki duga.

7.   Þuríður Blær. Hún er reyndar Jóhanns­dóttir.

8.   Póllandi.

9.   Úkraínu.

10.   Kjör­garður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sjón­varps­þættir hétu UFO eða FFH á íslensku.

Konan hét Högna, hún var Sig­urð­ar­dóttir.

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina síðan í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár