224. spurningaþraut: Kolmunni, Stóri bróðir, Mið-Asía, Tyrkland, sushi

224. spurningaþraut: Kolmunni, Stóri bróðir, Mið-Asía, Tyrkland, sushi

Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað sýnir ljós­myndin hér að ofan, eða var að minnsta kosti talin sýna um skeið?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað nefndi hann sig, mað­ur­inn sem varð for­seti Tyrk­lands á þriðja ára­tugnum, sat til dauða­dags 1938 og ger­bylti tyrk­nesku sam­fé­lagi?

2.   Hvað er kolmunni?

3.   Í hvaða skáld­sögu kom fyr­ir­brigðið „Stóri bróðir“ fyrst fram? 

4.   Í Mið-Asíu eru nú nokkur sjálf­stæð ríki sem áður voru hlutar Sov­ét­ríkj­anna. Hve mörg eru þau?

5.   Hvað hét síð­ari eig­in­kona John Lennons Bítils?

6.   En sú fyrri?

7.   Nona Gaprinda­svíli frá Georgíu (sem þá til­heyrði Sov­ét­ríkj­unum) varð heims­meist­ari kvenna í til­tek­inni grein árið 1962. Hún hélt þeim titli til 1978 þegar landa hennar Maya Chiburdanize tók við og var heims­meist­ari til 1991. Í hvaða grein voru þær heims­meist­arar?

8.   Gald­höpiggen heitir hæsti fjalls­tindur í Norður-Evrópu. Í hvaða landi er hann?

9.   Í hvaða landi er sushi upp­runnið?

10.   Rugila hét kóngur einn á mótum Evrópu og Asíu sem ríkti til árs­ins 425 e.Kr. eða þar um bil. Þegar hann dó tóku við tveir bróð­ur­synir hans. Annar hét Bleda en hann dó eftir um það bil 20 ár á valda­stóli, og sögðu fornir höf­undar að félagi hans og bróðir á valda­stóli hefði látið drepa Bleda. Eftir það ríkti bróð­ir­inn einn í tæp tíu ár, en dó svo árið 453. Þá mun feg­ins­st­una hafa farið um stóran hluta Evrópu. Hvað hét þessi ill­skeytti bróðir hans Bleda?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir leik­konan á þess­ari mynd hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ataturk.

2.   Fiskur.

3.   1984.

4.   Fimm. Þau eru Kasakstan, Úsbekistan, Tajikistan, Kyrgyzstan og Tur­k­menistan en ekki er nauð­syn­legt að þekkja nöfnin.

5.   Yoko Ono.

6.   Cynthia.

7.   Skák kvenna.

8.   Noregi.

9.   Japan.

10.   Atli, kon­ungur Húna.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Loch Ness-skrímslið. Myndin er þó vita­skuld fölsuð.

Á neðri mynd­inni er Cameron Diaz.

***

Hér er þraut gær­dags­ins, já, aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár