218. spurningaþraut: Madonna og Dana, frægir píparar, lönd í Afríku og fleira

218. spurningaþraut: Madonna og Dana, frægir píparar, lönd í Afríku og fleira

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær. Voruði búin með hana?

***

Auka­spurn­ing:

Á mynd­inni má sjá flug­véla­móð­ur­skipið Yorktown stór­lega laskað eftir óvina­árás í senni­lega afdrifa­rík­ustu sjóorr­ustu seinni heims­styrj­aldar og háð var sum­arið 1942. Yorktown sökk skömmu síðar, en var þó í vinn­ings­lið­inu í þess­ari orr­ustu. Hvað kall­ast þessi orr­usta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða lið hefur oft­ast orðið Eng­lands­meist­ari í fót­bolta karla?

2.   Í Afríku sunnan Sahara eru tvö ríki sem heita næstum því – en ekki alveg – sama nafn­inu. Þau eru bæði kennd við fljót eitt mikið og höf­uð­borgir beggja ríkj­anna standa við það, en reyndar með nærri þús­und kíló­metra milli­bili. Hvað heita þessi tvö ríki?

3.   Hversu löng er keppn­is­laug í ólympískum sund­greinum?

4.   Árið 1970 vann írska söng­konan Dana Eurovision söngvakeppn­ina með lag­inu „All Kinds of ..?“

5.   Hversu oft hefur söng­konan Madonna gengið í heil­agt hjóna­band?

6.   Hvaða starf fékk Björg Thoraren­sen um dag­inn?

7.   Hverjir eru alþjóð­legir ein­kenn­is­stafir íslenskra flug­véla?

8.   Bræður tveir eru vafa­laust lang­þekkt­ustu og vin­sæl­ustu píparar heims­ins. Raunar kom­ast engir pípu­lagn­inga­menn með tærnar þar sem þeir bræður hafa hæl­ana að vin­sældum. Hvað heita þeir?

9.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Ottawa?

10.   Við Mar­íu­höfn er talið að ein fyrsta höfn Íslands hafi verið og þar hafi verið stærsti kaup­staður lands­ins fram á 15. öld. Hvar er eða var Mar­íu­höfn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

 ***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Manchester United.

2.   Níger og Nígería.

3.   50 metrar.

4.   Everyt­hing.

5.   Tvisvar.

6.   Hún var skipuð í Hæsta­rétt.

7.   TF.

8.   Mario og Luigi.

Bræð­urnir Mario og Luigi.

9.   Kanada.

10.   Í Hval­firði.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

USS Yorktown sökk í orr­ust­unni við Midway.

Konan er Krist­björg Kjeld.

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár