217. spurningaþraut: Eftir hvaða fugli heita mörgæsir „penguins“?

217. spurningaþraut: Eftir hvaða fugli heita mörgæsir „penguins“?

Þrautin í gær, hér er hún.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist fugl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

1.   Íslensk leik­kona veikt­ist og varð að hætta að stunda sína list en gafst þó hvergi upp við list­sköpun og fór að mála myndir með pensli sem hún hélt á í munn­inum. Hvað hét hún?

2.   „Ástin er eins og sinu­eldur, ástin er seg­ul­stál. Af litlum neista verður oft mikið bál.“ Hver söng þetta?

3.    Í hvaða trú­ar­brögðum þykir Bhagavad Gita mikið merk­is­rit?

4.   Hvaða höf­undur sendir fyrir þessi jól frá sér bók þar sem aðal­sögu­hetjan er jarð­vís­inda­maður sem fylgist með miklu eld­gosi á Reykja­nesskaga?

5.   Hvaða ár fór Brexit-atkvæða­greiðslan fram á Bret­landi?

6.   Á árunum 1987-2000 voru fram­leiddar á Bret­landi margar sjón­varps­s­er­íur um frekar geð­stirðan og hvefs­inn lög­reglu­varð­stjóra í Oxford, sem leysti hvert erf­iða saka­málið af öðru. Einkenni hans voru mikil bjór­drykkja, óperu­á­hugi og eld­rauður Jagúar. Hvað nefnd­ist þessi inspector?

7.   Hvað heitir sundið milli Spánar og Marokkó?

8.   Eins og menn vita kall­ast mör­gæsir á suð­ur­hvelinu „pengu­ins“ á flestum erlendum málum. Fugl­arnir fengu þetta nafn í byrjun 19. aldar þegar land­könnun við suð­ur­skauts­landið var að hefj­ast. Þá nefndu sjó­menn fugl­ana eftir stórri og nokkuð svip­aðri fugla­teg­und sem þeir þekktu af norð­ur­hveli. Sá fugl var kall­aður „pengu­inus“. Raunin er þó sú að hinn norð­lægi „pengu­inus“ og mör­gæsir eru alls ekki náskyldar. Því miður er erfitt að rann­saka „pengu­inus“ núorðið, en hvaða teg­und var þetta, sem gaf hinum suð­rænu mör­gæsum nafn sitt?

9.   Hvar eru Svefn­eyjar?

10.   Hver er fjórði jóla­sveinn­inn sam­kvæmt jóla­sveina­vísum Jóhann­esar úr Kötlum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Edda Heiðrún Backman.

2.   Pálmi Gunn­ars­son.

3.   Hindúisma.

4.   Sigríður Hagalín Björns­dóttir.

5.   2016.

6.   Morse.

7.   Gíbraltar.

8.   Geir­fugl­inn sál­ugi.

9.   Á Breiða­firði.

10.   Þvöru­s­leikir.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fugl­inn kíví.

Neðri myndin er úr kvik­mynd­inni Casablanca.

***

Og að síð­ustu get­iði aftur nálg­ast hér þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár