Vann í Jeopardy! og flutti til Íslands

Bandaríkja­maðurinn Ryan Fenster þakkar sigur­göngu sinni í spurninga­þættinum Jeopardy! að hann hafi getað látið draum sinn um að læra miðalda­sögu við Háskóla Íslands rætast. Á sama tíma glímdi hann við veikindi, en vonast nú til að vera áfram hérlendis að rannsaka víkinga­tímann næstu árin.

Ryan Fenster
Ryan Fenster Ryan frestaði námi sínu á Íslandi um tvö ár vegna fjár­skorts, en frammi­staða hans í spurn­inga­þætti leysti vand­ann. Mynd: Heiða Helgadóttir

Bandaríski spurninga­þátturinn Jeopardy! á sér viðlíka sess í hjörtum áhorfenda vestanhafs og Gettu betur á Íslandi. Nýir þættir eru sýndir daglega þar sem keppendur reyna að svara spurningum stjórn­andans Alex Trebek með von um að þéna háar upphæðir. Trikkið er hins vegar að spurningum Trebek þarf að svara í formi spurningar.

Ryan Fenster, sem flutti frá Seattle til Íslands fyrir tveimur árum til þess að læra norræna miðalda­sögu, þakkar sigur­göngu sinni í þættinum fyrir að hafa getað látið draum sinn um að læra á Íslandi rætast. Ryan var einn af sigur­sælustu keppendum í þættinum árið 2018, keppti í níu þáttum og vann sér inn 156.497 Bandaríkja­dali, eða andvirði rúmlega 21 milljónar íslenskra króna.

Þótt Ryan hafi alist upp í Banda­ríkjunum er hann af norskum ættum og hefur alltaf haft mikinn áhuga á uppruna sínum. „Ég ólst upp við víkinga­sögur og hef alltaf haft gaman af því að lesa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár