216. spurningaþraut: „Ríki þetta er kennt við löngu dauðan kóng“

216. spurningaþraut: „Ríki þetta er kennt við löngu dauðan kóng“

Hlekkur á gær­dags­ins þraut.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Í hvaða borg er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Habbakúk, Hósea, Óbadía, Daníel, Míka, Jóel, Jónas, Amos, Nahúm, Haggaí, Sakaría, Malakí. Hverjir eru þetta?

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin á Norður-Írlandi?

3.   Við hvaða fjörð stendur Akureyri?

4.   Á hvaða haf­svæði var háð eina sjóorr­usta Íslend­inga árið 1244?

5.   Ríki eitt hér í heimi heitir eftir löngu dauðum kóngi, þótt hann hafi aldrei komið þangað. Hann sat hins vegar við stjórn­völ­inn þegar þegnar hans byrj­uðu land­könnun á því svæði sem nú myndar ríkið. Landar kóngs­ins fóru síðan með nýlendu­stjórn á svæð­inu lengi vel. Þótt ríkið sé orðið sjálf­stætt fyrir all­löngu hefur lands­mönnum ekki þótt taka því að skipta um nafn á ríki sínu, en nokkrar til­lögur um nafn­breyt­ingar hafa þó komið fram. Til dæmis má nefna Haring Bayang Kata­galugan, Kapatiran, Mahár­lika, Rizalia og Luzviminda. En dauði kóng­ur­inn heldur þó enn velli í nafni rík­is­ins. Hvaða ríki er þetta?

6.   Hvað heitir lengsta áin sem rennur (nær ein­göngu) um Rússland?

7.   Í hvaða íþrótta­grein keppti Martina Navr­a­tilova á sínum tíma og var þá ein sú sig­ur­sælasta í heimi?

8.   Hve margir hafa gegnt emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi síð­ustu 10 árin?

9.   Hver sagði: „Herra Gor­bat­sjov, rífðu niður þennan múr.“

10.   George Soros heitir auð­kýf­ingur einn sem býr í Banda­ríkj­unum, sem hefur orðið mið­punktur í ótal mörgum sam­sær­is­kenn­ingum öfga­hægri­manna. Í hvaða landi fædd­ist Soros?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Spámenn sem spá­dóms­bækur í Gamla testa­ment­inu eru kenndar við. En „spá­menn“ og „Biblían“ eru hér hin nauð­syn­legu stikkorð.

2.   Belfast.

3.   Eyja­fjörð.

4.   Húnaflóa.

5.   Fil­ipps­eyjar.

6.   Jenisei.

7.   Tennis.

8.   Fimm (Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, Sig­mundur Davíð, Sigurður Ingi, Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir).

9.   Ronald Reagan.

10.   Ung­verja­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Róm.

Neðri myndin sýnir Margréti sál­ugu, prinsessu í Bret­landi.

***

Og gleymið ekki að reyna yður við þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár