213. spurningaþraut: Bollywood, Ada Lovelace, Mars, Big Brother

213. spurningaþraut: Bollywood, Ada Lovelace, Mars, Big Brother

Þrautin frá í gær.

***

Auka­spurn­ingar eru tvær að þessu sinni. Sú fyrri á við mynd­ina hér að ofan. Konan á mynd­inni varð móðir á síð­asta ári og hefur ýmsu að sinna af þeim sökum, en á und­an­förnum vikum hefur líka komið í ljós að póli­tísk áhrif hennar í heima­landi sínu eru meiri en menn höfðu áður gert sér grein fyrir. Hvernig það birt­ist verður spurt um síðar, en í bili er spurn­ingin ein­fald­lega: Hver er barns­faðir kon­unnar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   „Bollywood“ er orð sem notað hefur verið um ind­verska kvik­mynda­gerð. Hvernig er þetta orð hugsað?

2.   Hvaða viti stendur yst á Sel­tjarn­ar­nesi?

3.   Sex fót­boltalið frá London eru í ensku Úrvals­deild­inni, efstu deild fót­bolt­ans á Englandi. Hér eru hins vegar talin upp SJÖ lið: Arsenal, Chelsea, Crystal Palace, Fulham, Totten­ham, West Bromwich Albion, West Ham. Hvað af þessum liðum er EKKI frá London?

4.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Pride and Prejudice, sem nefn­ist Hroki og hleypi­dómar á íslensku?

5.   Hvað er algeng­asta ætt­ar­nafnið í hinum spænsku­mæl­andi heimi?

6.   Hver leik­stýrði kvik­mynd­unum Á hjara ver­aldar (1983) og Svo á jörðu sem á himni (1993)?

7.   Ada Lovelace hét kona ein á Bret­landi sem fædd­ist 1815 en dó úr krabba­meini aðeins 36 ára. Hún var lengst af kunn­ust fyrir að vera dóttir skál­djöf­urs­ins Byrons lávarðar, en rúmri öld eftir að hún dó tók athyglin að bein­ast að merki­legu starfi sem hún hafði unnið á til­teknu sviði. Lovelace er nú á dögum talin stór­merki­legur frum­kvöð­ull við þróun til­tek­inna hluta. Hvaða hlutir eru það?

8.   Á Mars er hæsta fjall sól­kerf­is­ins, það rís 21 kíló­metra upp af yfir­borði plánet­unnar og er því þrisvar sinnum hærra en Everest-fjall á Jörðinni. Þá er átt við hæð þess frá sjáv­ar­máli. Hvað heitir þetta vold­uga fjall á nágranna­plánetu vorri?

9.   Big Brother and the Holding Company heitir 55 ára gömul banda­rísk hljóm­sveit sem enn er starf­andi, þótt 21 ár sé frá síð­ustu stúd­íó­plötu hljóm­sveit­ar­innar. Plötur og tón­leika­ferðir und­an­far­inna ára­tuga hafa ekki bein­línis slegið í gegn á heims­vísu, og þessa sveit þekkja margir fyrst og fremst vegna til­tek­ins með­lims sem tald­ist til hljóm­sveit­ar­innar nokkur fyrstu árin. Hver var sá með­limur Big Brother and the Holding Company?

10.   Hún varð drottn­ing í ríki sínu ung að árum en ríkti fyrstu árin ásamt bróður sínum. Í odda skarst millum þeirra og með hjálp vold­ugs her­for­ingja var bróð­ir­inn settur af. Hann drukkn­aði svo á flótta. Hún ríkti þá um stund með öðrum bróður sínum, en er talin hafa eitrað fyrir honum. Hún ríkti síðan ein í rík­inu og þótt hún tæki sér vold­ugan ást­mann fór ekk­ert milli mála að í sínu ríki réði hún. Hún var svo hrakin frá völdum eftir inn­rás frá útlöndum, og lést skömmu síðar aðeins 39 ára gömul. Hvað hét hún?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Nafni helstu kvik­mynda­borgar Indlands, Bombay (sem nú heitir að vísu Mumbai), skeytt framan við Hollywood, amer­ísku kvik­mynda­bæki­stöð­ina.

2.   Gróttu­viti.

3.   West Bromwich Albion.

4.   Jane Austen.

5.   García.

6.   Kristín Jóhann­es­dóttir.

7.   Tölvur.

8.   Olympos.

9.   Janis Joplin.

10.  Kleópatra drottn­ing í Egifta­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri:

Konan heitir Carrie Symonds.

Unnusti hennar er Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra á þvísa landi Bret­landi.

Sú síð­ari:

Þarna mátti sjá skjá­skot af hluta umslags­ins utan um plöt­una Wish You Were Here.

Sú plata er ein sú þekktasta sem gleði­hljóm­sveitin Pink Floyd sendi frá sér.

***

Og aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár