212. spurningaþraut: Hundar og börn Joe Bidens, nafnið á Mountbatten

212. spurningaþraut: Hundar og börn Joe Bidens, nafnið á Mountbatten

Þrautin síðan í gær.

***

Auka­spurn­ing númer eitt:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hver átti svona fínan jakka?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Í þátt­unum um bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una kemur Mountbatten-fjöl­skyldan nokkuð við sögu. Filippus eig­in­maður Elísa­betar Breta­drottn­ingar er til dæmis syst­ur­sonur Mountbattens lávarðar, sem írskir hryðju­verka­menn myrtu. Faðir Mountbattens lávarðar var þýskur prins, sem gerð­ist breskur flota­for­ingi, og árið 1917 skipti hann um nafn, af því hans rétta nafn þótti of þýskt – sér í lagi þegar Bretland átti í hörðu stríði við Þýska­land. En hvað var hið upp­haf­lega þýska nafn Mountbatten-ætt­ar­innar?

2.   Rudy Guiliani er orð­inn frægur sem aðsóps­mik­ill lög­maður Donalds Trumps og þykir fram­ganga hans með nokkrum ólík­indum. Fyrir tæpum 20 árum gegndi Guiliani hins vegar öðru starfi, og þá vakti hann reyndar mikið lof fyrir starf sitt og fram­komu. Hvaða starf var það?

3.   Sigurður Ingi Jóhanns­son er sam­göngu­ráð­herra, en í titli hans er reyndar líka annað ráðu­neyti nefnt til sögu. Hann er sem sagt sam­göngu- og [hvað]ráð­herra?

4.   Hvað heitir stærsti jök­ull á Íslandi?

5.   Hvaða dýr er frægt fyrir að stífla ár og koma sér upp eins­konar greni í stífl­unni?

6.   Hver er stærsta eyja Evrópu? 

7.   Hversu mörg börn hefur Joe Biden verð­andi Banda­ríkja­for­seti eign­ast?

8.   Úr því minnst er á Joe Biden, þá á hann tvö hunda, Champ og Major, sem munu vænt­an­lega flytja með honum í Hvíta húsið. Hund­arnir eru báðir af sömu teg­und. Hver er hún?

9.   Hvar var lýst yfir lýð­veldi á Íslandi árið 1944?

10.   Niña, Pinta og ...? Hvaða nafn vantar hér?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Í hvaða evr­ópsku borg er þetta nútíma­lista­safn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Batten­berg.

2.   Borg­ar­stjóri í New York.

3.    Samgöngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra.

4.   Vatna­jök­ull.

5.   Bjórinn.

6.   Bretland.

7.   Fjögur. Aðeins tvö eru á lífi.

8.   Þýskir fjár­hundar, Schäferhundar uppá þýsku.

9.   Á Þing­völlum.

10.   Santa Maria. Þetta voru skip Krist­ó­fers Kól­umbusar í fyrsta leið­angrinum yfir Atl­ants­hafið til Ameríku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Borís Spasskí heims­meist­ari í skák átti jakk­ann.

Lista­safnið (Gug­gen­heim) er í Bilbao á Spáni.

***

Og loks, þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár