208. spurningaþraut: Tveir forsætisráðherrar, tveir Reynistaðabræður, tvær Courtney

208. spurningaþraut: Tveir forsætisráðherrar, tveir Reynistaðabræður, tvær Courtney

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin að ofan er hluti af graf­ík­mynd sem gerð var eftir mál­verki J.L.Gerome og hún sýnir Napoleon Bonap­arte í her­ferð einni árið 1798. Hvað er Napoleon að horfa á á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ing:

1.   Courtney Cox heitir banda­rísk leik­kona, sem fór með hlut­verk í vin­sælli sjón­varps­mynda­seríu á árunum 1994-2004. Hvað hét ser­ían?

2.   Courtney Love heitir jafn­aldra hinnar fyrr­nefndu, hún hefur líka feng­ist við leik en er þó fyrst og fremst þekkt fyrir tón­list. Love þekkja vissu­lega ýmsir sem eig­in­konu eins helsta „grunge“ tón­list­ar­manns sög­unnar, hins skamm­lífa söngv­ara Nirvana, en hún hélt í 13 ár úti merki­legri rokk­hljóm­sveit á eigin vegum. Hvað hét sú hljóm­sveit Courtney Love?

3.   Og meðal ann­arra orða, hvað hét þessi skamm­lífi söngv­ari Nirvana?

4.   Hvað kall­ast hóll sá á Kili þar sem talið er að Reyni­staða­bræður hafi látið lífið?

5.   En hvenær dóu þeir bræður? Var það 1480, 1580, 1680, 1780 eða 1880?

6.   Hver var for­sæt­is­ráð­herra í vinstri stjórn­inni 1971-1974?

7.   Hvað heitir for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands?

8.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Doha?

9.   Í hvaða kvik­myndum kemur Miss Moneypenny fram?

10.  Guðný Guð­munds­dóttir heitir kona ein. Allt frá 1974 til 2010 gegndi hún starfi einu með miklum sóma, en það fól í sér að hún leiddi hóp ann­arra. Hvað kall­ast þetta starf?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi glað­sinna kona með spa­gettí-hatt­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Friends.

2.   Hole.

3.   Kurt Cobain.

4.   Beina­hóll.

5.   1780.

6.   Ólafur Jóhann­es­son.

7.   Sanna Marin. Hvort heldur for­nafn eða eft­ir­nafn dugar.

8.   Katar.

9.   James Bond-mynd­unum.

10.   Konsert­meist­ari (aðal­fiðlu­leik­ari) Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands. 

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni horfir Napoleon á sfinx­inn í Egifta­landi. Ef þið hafið svarað „píramídana“ þá gef ég líka rétt fyrir það, enda snýst spurn­ingin í raun um Egifta­land.

Síðari myndin sýnir Margaret Thatcher sem þarna var ekki orðin for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

***

Og hlekkur á þraut­ina síðan í gær er hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár