207. spurningaþraut: Hvaða kona lést árið 1907? Ættuð þið að vita það?

207. spurningaþraut: Hvaða kona lést árið 1907? Ættuð þið að vita það?

Þraut 206, frá í gær.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hver heitir stúlkan á mynd­inni hér að ofan? Það má taka fram að flestir þekkja rödd hennar lík­lega ívið betur en útlit hennar, að minnsta kosti meðan hún var svona ung.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver lék Vito Corleone þegar sú per­sóna var komin á efri ár?

2.   Hjá hvaða ill­ræmdu stofnun starf­aði Vladimir Pútin áður en hann fór hann út í póli­tík?

3.   Hún heitir Dorothea að milli­nafni og bar ætt­ar­nafnið Kastner þegar hún fædd­ist árið 1954. Hún gifti sig 1977 og tók þá upp ætt­ar­nafn eig­in­manns­ins og hefur haldið því, þótt þau séu löngu skilin. Hver er konan?

4.   Þegar piltur einn fædd­ist hét hann Nguyễn Phúc Vĩnh Thụy en eftir að hann varð keis­ari í heima­landi sínu árið 1926 kall­að­ist hann Bảo Đại. Hann var keis­ari til 1945 en reyndar lengst af lítið annað en leppur útlend­inga. Seinna varð hann um tíma for­seti í land­inu, eða hluta þess, en var áfram sak­aður um að vera hand­bendi ann­arra og var hrak­inn frá völdum 1955. Hann lifði allt til árs­ins 1997. Í hvaða landi bar Bảo Đại keis­ara­tign?

5.   Það kemur sjálf­sagt ýmsum á óvart að strangt til tekið er Sahara-eyði­mörkin ekki stærsta eyði­mörk á Jörðinni heldur má finna á heimskringl­unni aðra ennþá stærri. Hvar er hún?

6.   Kona nokkur gekk að eiga karl einn. Hún bar honum sex börn en fjögur þeirra dóu mjög ung. Eftir voru því aðeins tvö á lífi. Eig­in­maður kon­unnar, sem var emb­ætt­is­maður á eft­ir­launum, dó þegar hún var rúm­lega fer­tug. Sjálf and­að­ist hún 47 ára gömul úr krabba­meini árið 1907. Hún þótti engin atkvæða­mann­eskja en var gæða­blóð og varð sér­stak­lega 18 ára gömlum syni sínum mik­ill harmdauði. Hann var óhugg­andi lengi á eftir, þótt hann legði sig ann­ars fram um að sýn­ast mikið hörku­tól. Flestir telja þó að hann hafi ein­fald­lega verið ill­menni. En hvað hét þessi kona, móðir hans? Hér dugar for­nafn hennar. 

7.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Sjálf­stætt fólk?

8.   Ceres, Orca, Makemake, Gonggong, Quaoar, Haumea, Eris og Sedna. Hvaða listi er þetta?

9.   Hver varð nýlega heims­meist­ari í Formúlu 1 kappakstri í sjö­unda sinn?

10.  Í hvaða hafi eru Cayman-eyjar?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Marlon Brando.

2   KGB, sov­ésku leyni­þjón­ust­unni.

3.   Angela Merkel.

4.   Víetnam.

5.   Á Suð­ur­skauts­land­inu.

6.   Klara. Hún var sem sé móðir Adolfs Hitlers.

7.   Halldór Laxness.

8.   Þetta eru dverg­plánetur í sól­kerfi okkar. Plútó vantar á list­ann.

9.   Lewis Hamilton.

10.  Karí­ba­hafi.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni er franska söng­konan Edit Piaf.

Hér má sjá hana syngja sitt fræg­asta lag, Nei, ég sé ekki eftir neinu:

Síðari auka­spurn­ing:

Þetta var skjá­skot af hluta mest seldu plötu allra tíma, Thriller með Michael Jackson:

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár