206. spurningaþraut: Villa leynist hér í frásögn um Viktoríu drottningu!

206. spurningaþraut: Villa leynist hér í frásögn um Viktoríu drottningu!

Þrautin frá í gær, hérna!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Við hvaða tæki­færi er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Sintí-þjóðin er kannski ekki mjög þekkt en allir þekkja þó aðra þjóð, sem Sintíar telj­ast líka til­heyra. Sintíar tala sitt eigið tungu­mál, en það er skylt tungu­máli hinnar fyrr­nefndu „yfir­þjóðar“ en þó mjög blandað þýsku. Hvað kall­ast sú þjóð, sem Sintíar telj­ast vera hluti af?

2.   Einn fræg­asti Sintíinn fædd­ist 1910 og varð einn fræg­asti jazz-tón­list­ar­maður síns tíma en lést svo aðeins rúm­lega fer­tugur. Hann spil­aði á gítar og var einna fyrstur jazzista til að nota gít­ar­inn sem sóló­hljóð­færi, enda þótti hann gríð­ar­lega flinkur á sinn gítar. Hann spil­aði mikið með fiðlu­leik­ar­anum Stéphane Grapp­elli  en fór líka í hljóm­leika­ferð með Duke Ell­ington. Hvað hét þessi Sintí?

3.   Hversu margir búa á Stykk­is­hólmi? Hér er miðað við tölur Hag­stof­unnar 1. jan­úar 2020, og stekkju­mörk eru 100 manns.

4.   Grænland er stærsta eyja heims­ins, sé Ástralía ekki talin með. En hver er þá næst stærst?

5.   Og hvaða eyja ætli sé þá í þriðja sæti?

6.   Hvar býr breski for­sæt­is­ráð­herr­ann?

7.   Viktoría Breta­drottn­ing var ekki kon­ungs­dóttir. Faðir hennar var Georg her­togi af Kent, yngri bróðir hins barn­lausa Vil­hjálms 4. Hún tók við þegar Vil­hjálmur dó 1837 og var þá aðeins 18 ára. Hún gekk að eiga þýska prins­inn Albert og var hjóna­band þeirra einkar far­sælt, þótt barn­laust væri. Albert dó hins vegar 1861 og eftir það var Viktoría opin­ber­lega í sorg nálega til ævi­loka. Hins vegar bast hún mjög nánum böndum við þjón sinn, sem hét Brown, og telja margir að þau hafi verið elskendur. Viktoría dó 1901 og hafði þá verið drottn­ing í rúm 63 ár. Í þessum texta er ein villa. Hver er hún?

8.   Fyrir hvaða þjóð tap­aði íslenska karla­lands­liðið í fót­bolta um dag­inn í leik um sæti á Evr­ópu­mót­inu á næsta ári?

9.   Hvað heitir stærsta borgin við Finnska flóa?

10.   Hver sendi frá sér skáld­sög­una Tómas Jónsson met­sölu­bók árið 1966?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver þenur hér radd­böndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Síntíar telj­ast til Rómaní-fólks­ins sem áður var kallað Sígaunar.

2.   Django Rein­hardt.

3.   Íbúar eru 1.206 svo ég tel rétt allt frá 1.100 til 1.306.

4.   Nýja Gínea.

5.   Borneó.

6.   Downingstræti 10.

7.   Þau Viktoría og Albert voru sann­ar­lega ekki barn­laus, þau áttu níu börn.

8.   Ung­verjum.

9.   Pét­urs­borg.

10.  Guð­bergur Bergsson.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni má sjá Sæmund Pálsson gæta þess að Bobby Fischer fái nauð­syn­legt pláss fyrir ein­hverja skák sína í heims­meist­ara­ein­víg­inu við Boris Spassky árið 1972.

Nóg er að nefna skák­ein­vígið og Fischer.

Á seinni mynd­inni er nýjasta söng­stjarna okkar Íslend­inga, Bríet.

***

Hér er svo 205. þrautin, frá í gær sem sagt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár