205. spurningaþraut: „Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði“

205. spurningaþraut: „Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði“

Hér er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er her­skipið HMS Falmouth. Hvað kom fyrir það?

***

Aðal­spurn­ing:

1.   Hvaða íslenski tón­list­ar­maður sendi nýlega frá sér plöt­una Some Kind of Peace?

2   Árið 1986 kom út smá­sagna­safnið Níu lyklar eftir nýjan og óreyndan rit­höf­und. Þessi höf­undur hefur síðan gefið út fjölda skáld­sagna sem flestar hafa mælst einkar vel fyrir og selst vel. Þó hefur höf­und­ur­inn jafnan sinnt rit­störfum í hjá­verkum frá öðrum störfum. Hvaða höf­undur er þetta?

3.   Kona nokkur átti að vinna ull en nennti því engan veg­inn, svo hún tók því feg­ins hendi þegar stór­skorin kerl­ing bauðst til að vinna ull­ina fyrir hana. Þegar konan spurði kerl­ingu hvað hún vildi fá að launum svar­aði kerl­ing: „Það er nú ekki mikið. Þú skalt segja mér nafn mitt í þriðju gátu, og erum við þá sáttar.“ Spratt af þessu heil­mikil saga, en hvað hét kerl­ingin?

4.   Hvaða starfi gegndi Konrad Adenauer frá 1949 til 1963?

5.   Hver er vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins?

6.   Olivia Colman heitir bresk leik­kona sem gerir nú garð­inn frægan í hlut­verki konu einnar, sem ýmsar aðrar leikkonur hafa leikið á undan henni, svo sem Helen Mirren og Claire Foy. Hvaða hlut­verk er það?

7.   Í upp­hafi árs 2018 fékk Olivia hins vegar Ósk­arsverð­laun sem besta leik­kona í aðal­hlut­verki fyrir magn­aða frammi­stöðu í mynd­inni The Favourite. Hvaða hlut­verk lék hún í þeirri mynd.

8.   „Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Hvaða Rómverji var frægur fyrir að enda allar ræður sínar á þessum orðum?

9.   Hvaða dýr sendi Nói úr Örkinni til að leita lands?

10.   Í hvaða heims­álfu eru And­es­fjöll?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Ólafur Arnalds.

2.   Ólafur Jóhann Ólafsson.

3.   Gilitrutt.

4.   Kanslari Vestur-Þýska­lands.

5.   Lilja Alfreðs­dóttir.

6.   Elísa­betu drottn­ingu.

7.    Önnu drottn­ingu.

8.   Cato. Þeir voru reyndar tveir en nafnið Cato dugar alveg.

9.   Dúfu.

10.   Suður-Ameríku.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Sú fyrri:

HMS Falmouth sigldi á íslenska varð­skipið Tý í þriðja þorska­stríð­inu 1976. Nóg er að hafa stikkorðin „ásigl­ing“, „varð­skip“ og „þorska­stríð“.

Sú seinni:

Þarna má sjá hand­bolta­hetj­una Sigurð Sveins­son.

***

Og hlekk­ur­inn á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár