203. spurningaþraut: Af hverju kjökruðu Íslendingar?

203. spurningaþraut: Af hverju kjökruðu Íslendingar?

Þrautin frá í gær er hér.

***

Auka­spurn­ingar:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hver var umhverf­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar?

2.   Hvað hét fyrsti íslenski ráð­herr­ann?

3.   Einn af gam­an­leikjum Shakespe­ares heitir Kaup­mað­ur­inn í ...?

4.   Hvaða ríki ræður Asór-eyjum?

5.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Damaskus?

6.   Í gömlum mann­kyns­sögu­bókum er frá því greint að árið 1662 hafi helstu menn Íslend­inga skrifað nauð­ugir og jafn­vel kjökrandi undir plagg sem Danir otuðu að þeim á fundi í Kópavogi. Eftir á þykir vafa­samt að Íslend­ingar hafi endi­lega verið svo sorg­mæddir en hvað voru þeir að sam­þykkja með þessum gjörn­ingi?

7.   Hvað heitir ný skáld­saga Auðar Övu Ólafs­dóttur, sem nú er að koma út?

8.   Hvaða stjörnu­merki í hinum klass­íska dýra­hring er nú í gangi, hinn 15. nóv­em­ber?

9.   Hver var æðstur guð­anna í nor­rænni goða­fræði eins og við þekkjum hana?

10.   Frá hvaða landi er söng­konan Adele?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Björt Ólafs­dóttir.

2.   Hannes Hafstein.

3.   Feneyjum.

4.   Portúgal.

5.   Sýrlandi.

6.   Einveldi kon­ungs. Þetta er eina rétta svarið.

7.   Dýralíf.

8.   Sporð­drek­inn

9.   Óðinn.

10.   Bret­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Surts­eyj­ar­gosið í fullum gangi. Þessa frægu mynd tók Sig­ur­geir Jónasson í des­em­ber 1963.

Á neðri mynd­inni er ung­verska skák­drottn­ingin Judit Polgar.

***

Og hér er þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár