202. spurningaþraut: Spurningagarpar, inflúensa, skáld, tölvuleikur?

202. spurningaþraut: Spurningagarpar, inflúensa, skáld, tölvuleikur?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað hét málar­inn sem mál­aði mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir mál­verkið á mynd­inni hér að ofan?

2.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Ottawa?

3.   Hann er mik­ill spurn­inga­leikja­kappi, aðal­lega sem spurn­inga­höf­undur nú hin seinni árin, en hefur einnig getið sér orð fyrir alls­konar fræðslu­störf og göngu­ferðir, alveg fyrir utan póli­tísk hugð­ar­efni. Námskeið sem hann hefur gjarnan haldið um bjór munu vera einkar skemmti­leg, án þess að ég hafi setið eitt slíkt. Hvað heitir hann?

4.   Annar spurn­inga­leikja­kappi var Íslend­ingur sem ólst upp í Skotlandi og varð afar vin­sæll fjöl­miðla­maður þar í landi, og sá meðal ann­ars um spurn­inga­þátt­inn Masterm­ind hjá BBC í ald­ar­fjórð­ung. Jafn­framt skrif­aði hann bækur, meðal ann­ars um Ísland, þýddi Halldór Laxness á ensku og fleira. Hvað hét hann?

5.   Sjúk­dóm­ur­inn inflú­ensa dregur nafn sitt af því að menn töldu fyrrum að sjúk­dóm­ur­inn sprytti fram undir áhrifum („inflú­ens“) frá ákveðnum hlut eða hlutum. Hvað var það?

6.   Hvar á Íslandi er Fer­stikla?

7.   Íslensk skáld­kona gaf út fáar en vand­aðar ljóða­bækur, þær síð­ustu tvær hétu Höfuð kon­unnar og Hvar sem ég verð. Hún var jafn­framt rómuð fyrir þýð­ingar sínar á skáld­sögum Dostoé­v­skís úr rúss­nesku. Hvað hét hún?

8.   Hvað heitir söng­konan sem söng ára­tugum saman með Hljóm­sveit Ingimars Eydals á Akureyri?

9.   Toru Iwatani heitir jap­anskur tölvu­karl sem skap­aði einn af fyrstu tölvu­leikj­unum árið 1980, alla vega einn þeirra allra fyrstu sem náðu veru­legri útbreiðslu. Iwatani fannst tölvu­leik­irnir sem félagar hans voru að skapa snú­ast of mikið um stríð og bar­daga, og ein­setti sér að skapa leik sem væri huggu­legur, skemmti­legur, lit­ríkur og sner­ist um að borða. Honum tókst sann­ar­lega ætl­un­ar­verkið. Hvað heitir leik­ur­inn sem hann bjó til?

10.   „Þeim var ég verst er ég unni mest.“ Hver sagði þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Stúlkan með perlu­eyrna­lokk­inn.

2.   Kanada.

3.   Stefán Pálsson.

4.   Magnús Magn­ús­son.

5.   Him­in­tunglin.

6.   Hval­firði.

7.   Ingi­björg Har­alds­dóttir.

8.   Helena Eyj­ólfs­dóttir.

9.   Pac-man.

10.   Guðrún Ósvíf­urs­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri: Vermeer.

Sú seinni: Trabant.

***

Og enn: Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár