199. spurningaþraut: Wiki, Eiður Smári, zóróaster-trúin, og er fátt eitt talið

199. spurningaþraut: Wiki, Eiður Smári, zóróaster-trúin, og er fátt eitt talið

Þrautin gær­dags­ins, hér sjáið hlekk á hana!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Nýyrðið „wiki“ merkir vef­síðu sem les­endur og/eða not­endur sjálfir geta skrifað, breytt, mótað og bætt inn í hratt og örugg­lega. Það var amer­íski tölv­un­ar­fræð­ing­ur­inn Ward Cunningham sem þró­aði fyrstu wiki-síð­una og gaf fyr­ir­bær­inu þetta nafn, sem síðan er notað á Wikipedia, Wikileaks og margt fleira. Orðið „wiki“ er komið úr havaísku og Cunningham hafði séð það skrifað utan á smárútu sem flutti far­þega milli staða á flug­vell­inum í Honolulu. Utan á þeim stóð „Wiki Wiki“. Cunningham fannst orðið hæfa vel því sem hann var að þróa. Hvað skyldi orðið „wiki“ þýða í havaísku?

2.   Hvernig dýr er Auðhumla í nor­rænu goða­fræð­inni?

3.   Zóróaster-trú er æða­forn og er enn við lýði. Hvaða landi í fornöld tengd­ist upp­haf zóróaster-trú­ar­innar fyrst og fremst?

4.   Engin kona hefur enn orðið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. En hvaða kona varð fyrst vara­for­maður flokks­ins?

5.   Hvað heitir ævi­saga Herra Hnetu­smjörs, sem er nýkomin út?

6.   Hvað fékkst Jóhann Páll Valdi­mars­son við í ára­tugi með góðum árangri?

7.   Eiður Smári Guðjohn­sen var leik­maður Barcelona í þrjú ár. Hvaða númer hafði hann á treyju sinni þau ár?

8.   „Rúmlega tví­tugur karl­maður heldur út í heim með þrjá rósa­af­leggjara. Heima skilur hann eftir þroska­heftan tví­bura­bróður, aldr­aðan föður, og barn á fyrsta ári sem hann eign­að­ist með vin­konu vinar síns. Stefnan er tekin á fornan rósa­garð í óræðu þorpi sunnar í álf­unni.“ Svo er skáld­sögu einni lýst frá útgef­anda. En hver skrif­aði þessa bók?

9.   Hvað heita þau gras­rót­ar­sam­tök á Íslandi sem berj­ast gegn kyn­ferð­is­of­beldi og veita marg­vís­lega og mikla aðstoð því fólki sem hefur verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi, bæði konum en körlum líka?

10.   Í hvaða landi er haldið árlega tómata­há­tíð, sem gengur út á að nán­ast synda í tómötum, maka á sig tómötum, kasta tómötum í annað fólk og annað þvíum­líkt?  

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er það sem hér sýnir bað­föt?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   „Hratt“, „fljótt“ – eitt­hvað í þá átt­ina.

2.   Kýr.

3.   Í Persíu. Íran má líka telj­ast rétt.

4.   Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir.

5.   Hingað til.

6.   Bóka­út­gáfu.

7.   Sjö.

8.   Auður Ava Ólafs­dóttir.

9.   Stígamót.

10.   Á Spáni.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri er tekin á Bikini-eyja­kla­s­anum í Kyrra­hafi, þar sem kjarn­orku­vopna­til­raunir Banda­ríkja­manna fóru fram í nokkur miss­eri eftir síð­ari heims­styrj­öld. „Kyrra­hafið“ dugar ekki.

Sú seinni sýnir kvik­mynda­leikkon­una Sophiu Loren.

***

Og aftur hlekkur á gær­dags­þraut­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár