198. spurningaþraut: Spurt um David Copperfield, Marco Polo, Baulu og fleira

198. spurningaþraut: Spurt um David Copperfield, Marco Polo, Baulu og fleira

Já, hérna er þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Af hverjum er styttan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Marco Polo var Fen­ey­ingur sem þvæld­ist í langt ferða­lag á tíma þegar Evr­ópu­menn fóru sjaldn­ast langt að heima. Frásögn hans af ferða­lagi sínu vakti því mikla athygli, sér í lagi frá­sögn um eitt gam­al­gróið stór­veldi sem Marco Polo heim­sótti. Hvaða land var það?

2.   En um hvaða leyti var Marco Polo á ferð­inni? Var það rétt fyrir árið 900, rétt fyrir árið 1100, rétt fyrir árið 1300 eða rétt fyrir árið 1500?

3.    Hvað heitir menn­ing­ar­þáttur Rík­is­sjón­varps­ins sem jafnan má finna á eftir Kast­ljósi?

4.   Hvað heitir eig­in­kona Joe Biden?

5.   Hvar er fjallið Baula?

6.   Hvað heitir þétt­býl­is­stað­ur­inn í Súg­anda­firði?

7.   David Copperfield heitir skáld­saga ein ensk, sem gefin var út á 19. öld og hefur síðan notið mik­illa vin­sælda. Hver skrif­aði hana?

8.  En síð­ustu ára­tugi hefur annar David Copperfield – raun­veru­leg mann­eskja en ekki skáld­sagna­per­sóna – gert garð­inn frægan í skemmt­ana­lífi Vest­ur­landa.  Hvað gerir sá Copperfield sér til frægðar?

9.   Hún var fyrsta konan sem fékk Nóbels­verð­laun, fyrst allra til að fá tvenn Nóbels­verð­laun og eina mann­eskjan sem hefur fengið Nóbels­verð­laun í tveimur vís­inda­greinum. Hvað hét hún?

10.   Hver lék aðal­kven­hlut­verkið í mynd­inni Casablanca á móti Humphrey Bogart?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér kemur önnur stytta. Hvað nefn­ist þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kína.

2.   Rétt fyrir 1300.

3.   Menn­ingin.

4.   Jill.

5.   Borg­ar­firði.

6.   Suð­ur­eyri.

7.   Dickens.

8.   Hann er töfra­maður.

9.   Marie Curie.

10.   Ingrid Bergman.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á þeirri fyrri er stytta af Jónasi Hall­gríms­syni.

Á þeirri seinni er styttan Vatns­ber­inn. Ég spyr kannski um höf­und hennar seinna.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár