197. spurningaþraut: Ungfrú heimur, bresk prinsessa, svissneskur efnafræðingur, og fleira fólk!

197. spurningaþraut: Ungfrú heimur, bresk prinsessa, svissneskur efnafræðingur, og fleira fólk!

Hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ing­arnar tíu:

1.   Árið 1938 bland­aði sviss­neski efna­fræð­ing­ur­inn Albert Hofmann lyf sem átti fyrst og fremst að vera blóð­rás­ar­auk­andi. Það kom ekki að gagni en fimm árum seinna inn­byrti Hofmann af slysni svo­lítið af efn­inu og komst þá að því sér til undr­unar að það hafði allt önnur og mjög óvænt áhrif. Þá var farið að fram­leiða það sem lyf við geð­sjúk­dómum en það reynd­ist afar hættu­legt, þótt talið sé nýti­legt undir ströngu eft­ir­liti. Hvað heitir þetta efni?

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Rúss­landi?

3.   Unnur Birna Vil­hjálms­dóttir vann tit­il­inn Miss Universe árið 2005. Hún fékkst síðan við fyr­ir­sætu­störf og skylda iðju um hríð, en lauk síðan háskóla­prófi í til­tek­inni grein, sem hún hefur starfað við síðan. Hvaða grein er það?

4.   Í hvaða úthafi eru Maldíva-eyjar?

5.   Hversu mörg ríki Banda­ríkj­anna eru nefnd eftir til­teknum ein­stak­lingum? Hér má skeika einu ríki til eða frá.

6.   Hver var um dag­inn kosin vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar?

7.   Hvað hét eig­in­kona Ingólfs Arn­ar­sonar land­náms­manns? Fornafn hennar dugar að þessu sinni?

8.   Ýmsir Íslend­ingar hafa heitið Helgi Tómasson. Einn þeirra er braut­ryðj­andi í ákveð­inni list­grein hér á landi en hélt svo af landi brott og hefur starfað erlendis síðan. Hver er hans list­grein?

9.   Hljóm­sveitin Baggalútur var að senda frá sér nýja plötu sem geymir lög við kvæði og vísur ákveð­ins skálds. Hvaða skáld er það?

10.   Fimm ára dóttir Vil­hjálms her­toga af Cambridge er sú kona sem stendur næst bresku krún­unni, á eftir afa sínum, föður og eldri bróður. Hvað heitir sú stutta prinsessa?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Anya Taylor-Joy heitir leik­konan á mynd­inni hér að neðan. Hún leikur í vin­sælli sjón­varps­s­eríu sem nýbúið er að frum­sýna. Hvað heitir ser­ían?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   LSD.

2.   Moskva.

3.   Lögfræði.

4.   Ind­lands­hafi.

5.   Ríkin eru 11, svo rétt telst vera allt frá 10-12. Ríkin eru Virginía og Vestur-Virginía eftir Elísa­betu drottn­ingu („the virgin queen“), Norður og Suður Karólína (eftir Karl I. Breta­kóngi), Penn­syl­vania (eftir William Penn), Delaware (eftir De la Warr bar­óni), Maryland (eftir Hen­rí­ettu Maríu, drottn­ingu Karls I.), Georgia (eftir Georg II. kon­ungi), Louisiana (eftir Loðvíkk XIV. Frakka­kóngi), New York (eftir her­tog­anum af Jórvík, síðar Jakobi II. kon­ungi) og Washington (eftir George Washington for­seta).

6.   Heiða Björg Hilm­is­dóttir.

7.   Hallveig. Hún var Fróða­dóttir.

8.   Ballett.

9.   K.N., eða Káinn.

10.   Karlotta. Fullu nafni heitir hún Charlotte Elizabeth Diana Windsor.

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Anthony Fauci sótt­varn­ar­sér­fræð­ingur í Banda­ríkj­unum.

Sjón­varps­s­er­ían með Önyu Taylor-Joy heitir á ensku Queen's Gambit, á íslensku Drottn­ing­ar­bragð.

***

Og – aftur – hlekk­ur­inn frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár