Síðasti Geirfuglinn horfir frá ströndinni undir Valahnjúk í átt að Eldey, þar sem sá síðasti í heiminum var drepinn fyrir 176 árum. Bronsstyttan er eftir bandaríska listamanninn Tod McGrain, sem hefur undanfarin ár unnið að gerð skúlptúra af útdauðum fuglum, til að minna á sameiginlega ábyrgð okkar allra á náttúru og umhverfisvernd.
Athugasemdir