195. spurningaþraut: „Hávaxin og sólbrún og ung og yndisleg.“

195. spurningaþraut: „Hávaxin og sólbrún og ung og yndisleg.“

Þrautin frá í gær, hérna!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á mál­verk­inu sem við sjáum hluta af hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Stúlkan kom gang­andi, „hávaxin og sól­brún og ung og ynd­is­leg“. Þetta var ekki á Íslandi. En stúlkan var frá ...?

2.   „Orð / ég segi alltaf færri og færri orð / enda hafði ég lengi á þeim illan bifur.“ Hvaða íslenska skáld orti svo?

3.   Hver var fyrsti for­seti íslenska lýð­veld­is­ins?

4.   Hversu margir grunn­skólar eru í Reykja­vík, að sjálf­stætt starf­andi skólum og sér­skólum með­töldum? Skekkju­mörk eru 3 skólar til eða frá.

5.   Hvað er fjöl­menn­asta ríki heims þar sem kona er nú við stjórn­völ­inn í valda­mesta póli­tíska emb­ætti lands­ins?

6.   Hvað heitir heit­mús Mikka mús?

7.   Í hvaða borg var fræg­asta bóka­safn forn­aldar?

8.   McDonalds er útbreiddasta ham­borg­ara­keðja heims­ins. En hvað heitir keðjan í öðru sæti yfir vin­sælar ham­borg­ara­keðjur?

9.   Hvað hét norski kon­ung­ur­inn sem basl­aði við að koma Íslend­ingum undir sína stjórn á Sturl­unga­öld?

10.  Kona nokkur fædd­ist árið 1945, var ball­er­ína á unga aldri en gerð­ist síðan einn mik­il­virkasti leik­stjóri lands­ins og kom mjög víða við. Um tíma fór hún út í póli­tík og sat fyrst á Alþingi og síðan í stjórn­laga­ráði. Hún til­heyrir mik­illi leik­hús­fjöl­skyldu. Bróðir hennar, eig­in­maður og ein dóttir eru leik­arar, annar sona hennar hefur og komið við sögu leik­húss og leik­listar en hinn er víð­frægur leik­stjóri. Hvað heitir konan?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hún var frá Ipanema. Á ensu er sungið: „Tall and tan and young and lovely ...“ Sjá þessa útgáfu á víð­frægu bossa­nova-lagi þar sem Frank Sinatra syngur með höf­undi lags­ins, Antônio Carlos Jobim.

2.   Sigfús Daðason.

3.   Sveinn Björns­son.

4.   42, þar af eru sex sjálf­stætt starf­andi. Rétt má því telj­ast allt frá 39 til 45. Sjá nánar hér.

5.   Bangla Desj, þar sem Sheikh Hasina er for­sæt­is­ráð­herra.

6.   Minní mús.

7.   Alex­andríu í Egifta­landi.

8.   Burger King.

9.   Hákon.

10.   Þór­hildur Þor­leifs­dóttir.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Napóleon að krýna sig og Jósefínu til keis­ara­hjóna yfir Frakk­landi. Mál­verkið mál­aði David; hér má sjá aðeins stærri hluta þess.

Á neðri mynd­inni er Britney Spears söng­kona.

***

Og hér er hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár