194. spurningaþraut: Fluggáfuð álfkona á Grandavegi fór út í geim með mikið vænghaf?

194. spurningaþraut: Fluggáfuð álfkona á Grandavegi fór út í geim með mikið vænghaf?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér má sjá Argent­ínu­mann­inn Diego Maradona skora frægt mark á HM 1986. Markið fékk að standa þótt það væri ólög­legt með öllu, enda skorað með „hendi guðs“ eins og Maradona komst sjálfur að orði. Hann stríðir nú við veik­indi og við sendum honum bata­veðjur. En gegn hvaða lands­liði skor­aði Maradona þetta fræga mark?

*** 

Aðal­spurn­ingar:

1.   Mensa eru sam­tök þeirra sem hafa sér­lega háa greind­ar­vísi­tölu. Ein per­sóna í teikni­mynda­ser­í­unni Simpons er sögð vera með­limur í Mensa. Hver er það?

2.   Helstil fátt veiga­mik­illa kven­kyns karakt­era er í sagna­bálki J.R.R.Tolkiens um Hringa­drottin en í kvik­mynda­bálki Peter Jacksons var hlutur þeirra auk­inn nokkuð. Þar er einna helst álf­konan Gala­driel, afar hávaxin og gull­in­hærð. Hver lék Gala­driel í kvik­myndum Jacksons?

3.   Hver skrif­aði skáld­sög­una Granda­vegur 7?

4.   Hver var borg­ar­stjóri í Reykja­vík 1994-2003?

5.   Mikill mann­fjöldi hefur setið á þingi frá því það var end­ur­reist um miðja 19. öld. Þegar skoð­aðir eru fyrstu bók­staf­irnar í nöfnum þeirra kemur í ljós að sjö bók­stafir í ÍSLENSKA staf­róf­inu hafa enn ekki „eign­ast þing­mann“. Enginn þing­maður með þessa bók­stafi, sem fyrsta staf í nafni sínu, hefur sem sé setið á Alþingi. Hvaða sjö bók­stafir eru þetta? Nefna verður sex af þessum sjö.

6.   Hinar rúss­nesku Val­ent­ina Teresjkova og Svetlana Savit­skæja voru fyrstu kon­urnar sem fóru út í geim, sú fyrri árið 1963 og sú síð­ari 1982. Árið 1983 fór fyrsta banda­ríska konan út í geim og sú á reyndar ennþá metið sem yngsti geim­far­inn sem farið hefur út í geim. Hún var þá aðeins 32 ára gömul. Konan lést úr krabba­meini fyrir átta árum en hvað hét hún?

7.   Hvað heitir stærsta versl­un­ar­mið­stöð Kópavogs?

8.   Hvaða fugl hefur mesta væng­haf núlif­andi fugla­teg­unda?

9.   Hver var helsta ástar- og frjó­sem­is­gyðja nor­rænna manna sam­kvæmt fornum íslenskum heim­ildum?

10.   Í hvaða borg var fyrsta neð­an­jarð­ar­lesta­kerfið opnað árið 1890?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Kona þessi er nú komin undir sex­tugt og hefur ýmis­legt reynt á lífs­leið­inni. Hún hefur skýrt opin­skátt frá erf­iðri bar­áttu sinni við fíkn í heróín og annan sora, og greint frá and­legu og lík­am­legu ofbeldi sem hún varð fyrir á barns­aldri. En það var einmitt á barns­aldri hennar sem allt virt­ist leika í lyndi. Þessi kona var til að mynda yngsti Ósk­arsverð­launa­hafi sög­unnar. Hvað heitir hún?

***

1.   Lisa.

2.   Cate Blanchett.

3.   Vigdís Gríms­dóttir.

4.   Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir.

5.  Bók­stafirnir eru Ð, É, Ú, Y, Ý, X og Æ.

6.   Sally Ride.

7.   Smára­lind.

8.   Albatross.

9.   Freyja.

10.   London.

***

Svör við auka­spurn­ingum koma svo hér.

Sú fyrri:

Maradona skor­aði markið með hendi gegn Eng­lend­ingum.

Sú seinni:

Þetta er Tatum O'Neal sem fékk Óskar tíu ára gömul árið 1974 fyrir hlut­verk sitt í mynd­inni Paper Moon, þar sem hún lék með fúl­menn­inu föður sínum.

Ryan og Tatum O'Nealí hlut­verkum sínum í Paper Moon.

***

Og reynið yður við þraut­ina frá í gær, ef þér hafið ekki gert það nú þegar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár