193. spurningaþraut: Hér koma við sögu Erwin Schrödinger, Zlatan Ibrahimovic, Spencer Perceval og Nikolay Przhevalsky

193. spurningaþraut: Hér koma við sögu Erwin Schrödinger, Zlatan Ibrahimovic, Spencer Perceval og Nikolay Przhevalsky

Hér eru spurn­ing­arnar frá í gær. Gleymd­uði nokkuð að svara þeim?

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn lengst til vinstri á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað er fokka? Ég meina nafn­orðið, ekki sagn­orðið.

2.   Eðl­is­fræð­ing­ur­inn Erwin Schrödinger var einu sinni að basla við að útskýra furður skammta­fræð­innar svoköll­uðu í eðl­is­fræði, og bjó þá til hug­mynd um ákveðið dýr sem væri í senn lif­andi og dautt. Hvaða dýr not­aði hann í þessa hug­mynd?

3.   Önnur dýra­spurn­ing, en giska ólík. Nikolay Przhevalsky hét rúss­neskur land­fræð­ingur sem ferð­að­ist víða um Asíu á 19. öld. Hann lýsti fyrstur manna gasellu­teg­und sem við hann er kennd, en líka annarri dýra­teg­und sem heitir líka eftir honum. Menn eru ekki alveg á eitt sáttir um upp­runa þess dýrs, en hugs­an­lega er um að ræða ævaforna útgáfu af dýra­teg­und sem allir þekkja. Hvað er þetta seinna dýr sem kennt er við Przhevalsky?

4.   Með hvaða fót­boltaliði spilar Zlatan Ibrahimovic þessa dag­ana? 

5.   Hvað heitir höf­uð­borg Serbíu?

6.   Spencer Percival var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands 1809-1812. Það fer satt að segja ekki sér­stökum sögum af afrekum hans í emb­ætti, þótt Bretar hafi þá verið að ná yfir­hönd­inni í styrj­öld sinni við Napóleon. Percival er hins vegar minnst fyrir allt annan hlut, sem gerir hann ein­stæðan í röð breskra for­sæt­is­ráð­herra, bæði fyrr og síðar, þótt fáir öfundi hann af því. Hvað er það?

7.    Vítamín eru líf­ræn efna­sam­bönd sem eru mann­inum nauð­syn­leg. Hversu mörg eru vítamínin sem gagn­ast mann­inum? Hér má muna einu, til eða frá?

8.   Ég held að ég sé ekki enn búin að spyrja hver var fyrsta konan sem gegndi ráð­herra­emb­ætti á Íslandi. Þá spyr ég um það nú. Hver var hún?

9.   Hvað heitir stærsti þétt­býl­is­stað­ur­inn í Borg­ar­byggð?

10.   Hvað tón­list­ar­maður sendi frá sér lög eins og Papa Don't Preach, Live to Tell, La Isla Bonita og Like a Prayer?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum;

1.   Segl.

2.   Köttur.

3.   Hestur.

4.   AC Milan.

5.   Belgrad.

6.   Hann er eini breski for­sæt­is­ráð­herr­ann sem hefur verið myrtur í emb­ætti. Ekki er nóg að segja að hann hafi dáið – morð verður að nefna.

7.   Þau eru þrettán, svo rétt má vera 12-14.

8.   Auður Auðuns.

9.   Borg­ar­nes.

10.   Madonna.

***

Svar við fyrri auka­spurn­ingu:

Þarna sást í nef og enn­is­blöð Leníns, komm­ún­ista­leið­toga í Rúss­landi.

Svar við seinni auka­spurn­ingu:

Þetta var Benazir Bhutto, for­sæt­is­ráð­herra Pakist­ans 1988-1990 og aftur 1993-1996.

***

Og aftur hlekkur á spurn­ingar gær­dags­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár