189. spurningaþraut: Kássa, ástarstjarna, víðáttumikil ríki, síðasta símaskráin

189. spurningaþraut: Kássa, ástarstjarna, víðáttumikil ríki, síðasta símaskráin

Þrautin frá nýliðnum degi, hér get­urðu nálg­ast hana.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir mað­ur­inn í jakka­föt­unum, sem þarna má sjá standa uppi á skrið­dreka og flytja ávarp?

***

1.   Í hvaða landi er höf­uð­borgin Islama­bad?

2.   Igor Sikorsky hét Rússi einn, fæddur 1889 en flutti til Banda­ríkj­anna þrí­tugur. Hann fann upp, þró­aði og smíð­aði marg­vís­legar vélar af til­tek­inni gerð, en nafn hans mun þó verða sér­stak­lega tengt alveg ákveð­inni sort af vélum. Hvers konar vélar eru það?

3.   Rússland er aug­ljós­lega lang víð­áttu­mesta ríkið í Evrópu. En hvaða ríki er í öðru sæti?

4.   Og á sama hátt: Hvað er þriðja víð­áttu­mesta ríki Evrópu?

5.   Réttur nokkur er eins konar kássa, oft­ast með kjöt­hakki, og ýmist egg­plöntum eða kart­öflum. Ásamt ýmiss konar kryddi og græn­meti er kássan sett í skál og bökuð með miklum osti eða stundum hveiti­bland­aðri mjólk­ur­sósu. Kássan er upp­runnin á Balkanskaga og/eða í Mið­aust­ur­löndum, en við hér á Vest­ur­löndum þekkjum hana best í grískri útgáfu. Hvað heitir þessi kássa?

6.   „Ást­ar­stjörnu / yfir Hraun­dranga / skýla næt­ur­ský; / hló hún á himni, / hryggur þráir / sveinn í djúpum dali.“ Hver orti?

7.   Hver skrif­aði barna­bæk­urnar Sitji Guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni?

8.   Brenda Blethyn heitir virt leik­kona sem sló í gegn í kvik­mynd­inni Secrets & Lies eftir Mike Lee árið 1996. Síðustu árin er hún þekkt­ust fyrir að leika til­tekna per­sónu í langri og vin­sælli sjón­varps­mynda­röð. Hvað heitir sú per­sóna?

9.   Við hvaða fjörð stendur bær­inn Höfn?

10.   Hvaða ár kom síð­asta útgáfan af síma­skránni á Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá söng­kon­una Patti Smith flytja lagið A Hard Rain's A-Gonna Fall eftir Bob Dylan við frekar óvenju­legar aðstæður árið 2016, enda er Smith vön­ust því að koma ein fram með gítar eða með rokk­hljóm­sveit. Þannig þekkjum við Íslend­ingar hana en hún hefur nokkrum sinnum troðið upp hér á landi. En við hvaða aðstæður flutti hún þetta lag Dylans í þetta sinn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Pakistan.

2.   Þyrlur.

3.   Úkraína.

4.   Frakk­land.

5.   Mússaka.

6.   Jónas Hall­gríms­son.

7.   Guðrún Helga­dóttir.

8.   Vera Stanhope. For­nafnið dugar reyndar alveg.

9.   Horna­fjörð.

10.   Árið 2016.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri:

Þetta er Borís Jeltsín.

Sú seinni:

Patti Smith söng lagið við athöfn þegar Dylan vini hennar voru veitt Nóbels­verð­launin í bók­menntum. Hann gat sjálfur ekki verið við­staddur.

Áhorf­end­urnir voru ekki alveg venju­legir fyrir Patti Smith eins og hér má sjá:

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár