188. spurningaþraut: Hver verður allt í einu stór af því hann fer í „hina alræmdu Bítlaskó“?

188. spurningaþraut: Hver verður allt í einu stór af því hann fer í „hina alræmdu Bítlaskó“?

Þrautin frá gær­deg­inum!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá Þráin Ber­tels­son rit­höf­und leika við hund­inn sinn. Hvað heitir hund­ur­inn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   „Var ekki nóg að fá tjútt og tvist? / Tæpast flokk­ast þessi öskur sem list! / Drottinn minn, er dansæf­ing í kvöld? / Djöf­ull­inn sjálfur mun taka hér völd. / Allt í einu er [XXX] litli orð­inn stór. / Það gera hinir alræmdu Bítla­skór.“

Hver er kom­inn í Bítlaskó og því „orð­inn stór“?

2.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Perú?

3.   Geir Haarde fyrrum for­sæt­is­ráð­herra var dreg­inn fyrir lands­dóm eftir fjár­mála­hrunið 2008 og sak­felldur fyrir eitt af þremur ákæru­at­riðum. Um hvað sner­ist þetta til­tekna atriði?

4.   Hvaða söng­kona var lengst í hljóm­sveit­inni Stuð­mönnum?

5.   Í þjóð­sagna­ver­öld Andrésar Andar segir stundum frá upp­runa Jóakims Aða­l­andar, móð­ur­bróður Andrésar? Frá hvaða landi kom hann?

6.   Hvað er algeng­asta frum­efni alheims­ins?

7.   Bill Gates varð ofsa­ríkur á fyr­ir­tæk­inu Microsoft en á seinni árum hefur hann orðið meira áber­andi fyrir góð­gerða­starf ann­ars konar. Á því sviði er konan hans ekki eft­ir­bátur hans, og fyr­ir­tækið sem heldur utan góð­gerða­starf þeirra er kennt við þau bæði. Hvað heitir hún?

8.   Hversu marga fætur hafa kóngulær?

9.   Fari maður rúma 100 kíló­metra í suð­vestur frá stór­borg­inni New York í Banda­ríkj­unum kemur maður að annarri stór­borg. Hvað heitir hún?

10.  Hvað hét víð­frægur mynd­höggv­ari í Danmörku á 19. sem var íslenskur í aðra ætt­ina?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Á mynd­inni að neðan má sjá eina virt­ustu leikkonu Íslands á síð­ari hluta 20. aldar. Hún lést árið 2011 en hvað hét hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Andrés.

2.   Líma.

3.   Fyrir að hafa ekki haldið rík­is­stjórn­ar­fundi um „mik­ils­verð mál­efni“, það er að segja hinn aðsteðj­andi efna­hags­vanda.

4.   Ragn­hildur Gísla­dóttir.

5.   Skotlandi.

6.   Vetni.

7.   Melinda.

8.   8.

9.   Phila­delphia.

10.  Thor­vald­sen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Hund­ur­inn á efri mynd­inni heitir Theobald og gaf fyrir örfáum vikum út bók sem hann samdi ásamt Þráni.

Leik­konan á neðri mynd­inni er Helga Bachmann.

***

Og þrautin frá í gær, hér er hún!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár