186. spurningaþraut: Hvað af 13 dýrum er EKKI í kínverska dýrahringnum? - og fleira

186. spurningaþraut: Hvað af 13 dýrum er EKKI í kínverska dýrahringnum? - og fleira

Áður en lengra er haldið: þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan er umslag fyrstu hljóm­plötu vin­sæls tón­list­ar­manns. Hver er það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Nú tel ég upp þrettán dýr í staf­rófs­röð: api, dreki, geit, hani, hestur, hundur, kan­ína, leð­ur­blaka, rotta, snákur, svín, tígris­dýr og uxi. Eitt af þessum dýrum er EKKI í kín­verska dýra­hringnum í stjörnu­speki. Hvaða dýr er það sem er EKKI með í kín­versku stjörnu­spek­inni?

2.   Hvað hét sá maður sem áætlun Banda­ríkja­manna um að end­ur­reisa stríðs­hrjáð ríki Evrópu eftir seinni heims­styrj­öld er kennd við?

3.   Hvaða banda­ríska leik­kona lék aðal­kven­rull­una í hinni vin­sælu kvik­mynd Term­inator árið 1984?

4.   En hvað hét per­sónan sem hún lék?

5.   Austur af Helga­fells­sveit og Stykk­is­hólmi á Snæ­fells­nesi teygir sig all­langur fjörður inn í nesið norð­an­vert. Hvað heitir hann?

6.   Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Ankara?

7.   Hvað heitir bisk­upinn yfir Íslandi?

8.   Hvaða vin­sæli útvarps­maður, sem nú er lát­inn, sá lengi um þátt­inn Kvöld­gesti á Rík­is­út­varp­inu?

9.   Hvaða tveir Bítlar eru enn á lífi?

10.   Hver vann orr­ust­una við Austerlitz?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Enginn veit hvað risa­eðlur köll­uðu sig sjálfar. En hvað köllum við þá glað­lyndu teg­und, sem sést hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Leð­ur­blakan.

2.   Marshall.

3.   Linda Hamilton.

4.   Sarah Connor.

5.   Álfta­fjörður.

6.   Tyrkland.

7.   Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir.

8.   Jónas Jónasson.

9.   Paul McCartney og Ringo Starr.

10.   Napoleon.

***

Auka­spurn­ingar:

Á efri mynd­inni má sjá fyrsta plötu­umslag Lady Gaga.

Á neðri mynd­inni er Tyrann­osaurus Rex.

***

Og reynið ykkur við þraut­ina frá í gær. Hér er hún nefni­lega!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár