185. spurningaþraut: Pestó og postular, Guilietta Masina og Ardern

185. spurningaþraut: Pestó og postular, Guilietta Masina og Ardern

Hér er gær­dags­ins þraut.

***

Auka­spurn­ingar:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá frægt augna­blik á ólymp­íu­leik­unum í Mexíkó 1968 þegar banda­rísku íþrótta­menn­irnir Tommie Smith og John Carlos lyftu hnefum við verð­launa­af­hend­ingu til stuðn­ings bar­áttu­hreyf­ingu svartra í Banda­ríkj­unum. Þeir voru að taka við gull- og brons-verð­launum. En í hvaða ólymp­íu­grein höfðu þeir Smith og Carlos unnið til verð­launa sinna?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Jacinda Ardern vann á dög­unum glæsi­legan kosn­inga­sigur í Nýja Sjálandi þegar flokkur hennar vann 50 pró­senta atkvæða í þing­kosn­ingum. En hvað heitir flokk­ur­inn hennar?

2.   Hvaða krydd­jurt er uppi­staðan í hefð­bund­inni pestósósu?

3.   Hver lék Forrest Gump í sam­nefndri kvik­mynd?

4.   Hver er útvarps­stjóri Útvarps Sögu?

5.   Betty Friedan var kona ein sem komst í frétt­irnar um miðjan sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar og var gjarnan í frétt­unum síðan fyrir verk sín, allt þar til hún lést 2006. Á hvaða sviði lét hún að sér kveða?

6.   Í hvaða núver­andi ríki var hin forna stór­borg Karþagó, sem atti mjög kappi við Rómaborg á annarri og þriðju öld fyrir Krist?

7.   Í Post­ula­sög­unni og bréfum Páls post­ula í Nýja testa­ment­inu kallar hann sig óhikað „post­ula“ vegna þess í hve nánu sam­bandi hann sé við hinn upp­risna Krist. En strangt til tekið gátu nú ekki aðrir kallað sig post­ula en þeir úr hópi hinna upp­runa­legu læri­sveina, sem Jesúa og læri­sveinar hans völdu sjálfir. Hve margir báru post­ula­tign sam­kvæmt því?

8.  Hvað hét fyrsta skip Eim­skipa­fé­lags Íslands?

9.   Guili­etta Masina hét ítölsk film­stjarna, einkar vin­sæl og virt á sínum tíma. Hún lék í þó nokkrum fjölda mynda en er einna þekkt­ust fyrir nokkrar bráð­skemmti­legar myndir sem hún lék í hjá leik­stjór­anum eig­in­manni sínum. Hvað hét sá góði maður?

10.   Hvað hét fyrsta breið­skífa Utan­garðs­manna?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Verka­manna­flokk­ur­inn, Labour Party á eng­elsku.

2.   Basilika.

3.   Tom Hanks.

4.   Arn­þrúður Karls­dóttir.

5.   Kven­rétt­inda. Friedan var mik­il­virkur rit­höf­undur en „kven­rétt­indi“ verða að koma fram í svar­inu.

6.   Túnis.

Juili­etta Masinalék m.a. í Fellini-mynd­unum Nætur Cabiriu og La strada.

7.   13. Þeir voru upp­haf­lega tólf en eftir að Júdas gekk út og hengdi sig, þá völdu hinir post­ul­arnir arf­taka hans. Sá hét Mattías og er þekktur sem „þrett­ándi postul­inn“.

Því gegndu alls 13 menn þessu sæmd­ar­heiti áður en Páll tók upp á því að sæma sjálfan sig því.

8.   Gullfoss.

9.   Federico Fellini.

10.   Geisla­virkir. Hér er máske rétt að minna á að Ísbjarn­ar­blús var sóló­plata Bubba Morthens en ekki plata með Utan­garðs­mönnum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú efri:

Þeir Smith og Carlos voru þarna að taka við verð­launum fyrir 200 metra hlaup karla.

Sú neðri:

Þetta er Joanne Rowling, höf­undur sagn­anna um galdra­svein­inn Harry Potter.

***

Og svo þrautin frá í gær, öðru sinni. Reynið yður við hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár