184. spurningaþraut: Kartöfluætur, spákona, hið ljósa man? og margt fleira

184. spurningaþraut: Kartöfluætur, spákona, hið ljósa man? og margt fleira

Spurn­inga­þrautin í gær? Hún er hér.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi mynd hér að ofan var tekin 1913. Bar­áttu­maður gekk út á veð­hlaupa­braut til stuðn­ings mál­stað sínum en varð fyrir hesti og dó sam­stundis. Enn er ekki vitað hvort bar­áttu­mað­ur­inn hafði hugsað sér að fórna þannig líf­inu, eða hvort um fífldirfsku var að ræða. En hver var mál­staður bar­áttu­manns­ins?

***

1.   „Hið ljósa man“ er ein af þremur bókum sem saman mynda Íslands­klukku Halldórs Laxness. Hvað heitir „hið ljósa man“? Fornafn er nóg.

2.   Hvaða þétt­býl­is­staður er stærstur við Stein­gríms­fjörð á Ströndum?

3.   Hvað heitir spá­konan í Eyja­bókum Einars Kára­sonar? Aftur dugir for­nafn.

4.   Árið 1948 vann Ísland sinn fyrsta lands­leik í fót­bolta. Það var karla­liðið sem spil­aði, enda var kvenna­lið þá ekki komið til sög­unnar. En hver var and­stæð­ing­ur­inn sem Ísland kné­setti með einu marki gegn engu?

5.   Hver orti þessa vísu? – „Þó að kali heitan hver, / hylji dali jök­ull ber, / steinar tali og allt hvað er, / aldrei skal ég gleyma þér.“

6.   Einhvern tíma þegar covid leyfir verður leik­ritið „Sjö ævin­týri um skömm“ frum­sýnt í Þjóð­leik­hús­inu en það er eftir íslenskan höf­und sem áður hefur skrifað leik­ritin „Bláskjá“ og „Kart­öflu­æt­urnar“. Hvað heitir þessi höf­undur?

7.   Amerísku sjón­varps­þætt­irnir Succession fjalla um fjöl­skyldu sem rekur stórt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki. Ætt­föð­ur­inn leikur sóma­leik­ar­inn Brian Cox. En hvað er ætt­ar­nafn fjöl­skyld­unnar sem allt snýst um?

8.   Önnur sjón­varps­s­ería er hug­ar­smíð bresku leikkon­unnar Phoebe Waller-Bridge, en það er fylgst á grát­bros­legan hátt með sigrum og ósigrum aðal­per­són­unnar sem Waller-Bridge leikur sjálf. Hvað heitir sú per­sóna, og þátta­ser­ían líka?

9.   Hver er næst fjöl­menn­asta borg í Banda­ríkj­unum?

10.   Hvað heitir austasti höfði Íslands?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Lítið á mynd­ina hér að neðan. Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Snæ­fríður.

2.   Hólmavík.

3.   Karólína.

4.   Finnland.

5.   Skáld-Rósa eða Vatns­enda-Rósa.

6.   Tyrf­ingur Tyrf­ings­son.

7.   Roy.

8.   Fleabag.

9.   Los Angeles.

10.   Gerpir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá bana­stund ensku súf­fra­gett­unnar Emily Davidson árið 1913 en hún var her­ská kven­rétt­inda­kona og fram­ar­lega í hópi þeirra kvenna sem börð­ust af öllu afli fyrir því að konur fengju kosn­inga­rétt.

Ekki er nauð­syn­legt að þekkja nafn hennar, aðeins að hún hafi verið að berj­ast fyrir kosn­inga­rétti kvenna.

Á neðri mynd­inni er aftur á móti „auga“ tölv­unnar HAL 9000 úr hinni eft­ir­minni­legu kvik­mynd 2001: A Space Odyssey. 

Þið þurfið ekki að muna hvað tölvan var kölluð – nóg er að átta sig á að þetta sýni „tölv­una úr 2001“.

Enda liggur það nátt­úr­lega í augum uppi.

***

Og loks, hlekkur á þraut gær­dags­ins, aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár