182. spurningaþraut: Hvaða dýri var smyglað milli landa, hvaða fornhetja glímdi við Amasónur?

182. spurningaþraut: Hvaða dýri var smyglað milli landa, hvaða fornhetja glímdi við Amasónur?

Gleymið eigi þraut­inni frá því í gær; hér er hlekkur á hana.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á hvað eru þessir karlar að benda?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Aðal­kryddið í Earl Grey tei er komið úr jurt sem heitir á erlendum tungum bergamot, en var lengst af kallað bergamía á íslensku. Hvers konar jurt er það? Hér dugar að nefna til sögu frændsystkin bergamíu úr jurta­rík­inu.

2.   Hvað hét upp­hafs­maður íslams?

3.   Hver var fræg­asta forn­hetjan sem sögð var hafa att kappi við ama­sónur? Það voru kven­stríðs­menn knáir.

4.   Hvað heitir sá karl sem hleypti af stokk­unum fyr­ir­tæk­inu Amazon.com?

5.   Hver sló í gegn með lag­inu Born to Run í ágúst 1975?

6.   Á hvaða eyju er hinn frægi Blái hellir?

7.   Hver var fyrsta konan sem hélt opin­beran fyr­ir­lestur á Íslandi - svo vitað sé?

8.   Fyrsta eig­in­kona Donalds Trumps heitir Ivana. Í hvaða landi fædd­ist hún?

9.   Hver veitti Guðna Th. Jóhann­essyni mesta keppni í for­seta­kosn­ing­unum 2016?

10.  Bombyx mori heitir dýr eitt á lat­ínu. Í sumum heims­hlutum þykir það einkar gott til átu, en ekki ann­ars staðar. Alls staðar er það hins vegar mik­ils metið af öðrum orsökum, og sagt er að fyrir 1.500 árum hafi munkar nokkrir haft mikið fyrir því að smygla dýr­inu langa vega­lengd milli landa, og reyndar milli heims­hluta, af því keis­arar í einu til­teknu landi hafi endi­lega viljað kom­ast yfir dýr þetta, svo þeir gætu látið það vinna fyrir sig. Hvaða dýr er bombyx mori?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða staður er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Bergamía heitir nú ilmapp­el­sína á íslensku og er af sítru­sætt. Það dugar að nefna sítrónur og/eða app­el­sínur sem skyldar jurtir.

2.   Múhameð.

3.   Herakles eða Herkúles.

4.   Bezos.

5.   Bruce Springsteen.

6.   Kaprí.

7.   Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

8.   Tekkóslóvakíu. Fæð­ing­ar­staður hennar er nú í Tékk­landi, vissu­lega, en hún fædd­ist í Tékkóslóvakíu.

9.   Halla Tóm­as­dóttir.

10.   Silki­orm­ur­inn, silki­fiðr­ildið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Sú fyrri:

Karl­arnir eru að benda í átt­ina sem byssu­skot það kom úr sem lagði að velli Martin Luther King árið 1968.

Sú seinni:

Þessi mynd var tekin á Flateyri.

***

Og hlekk­ur­inn frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár