181. spurningaþraut: Listastefna, íslenskar kindur og fyrstu húskettirnir

181. spurningaþraut: Listastefna, íslenskar kindur og fyrstu húskettirnir

Kíkið á þraut­ina frá í gær, ef þið hafið ekki þegar leyst hana!

***

Fyrri auka­spurn­ing.

„Að bjarga heim­inum“ er stundum haft í flimt­ingum að ætti að vera óska­draumur hvers manns. En það er í alvör­unni hægt að færa fyrir fyrir því gild rök að mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan hafi vissu­lega „bjargað heim­inum“ með því sem hann gerði, eða rétt­ara sagt neit­aði að gera. Hvað var það svona nokkurn veg­inn?

***

Aðal­spurn­ingar.

1.   Á eyju nokk­urri all­stórri hafa fund­ist allt að 9.500 ára gamlar leifar um heim­il­is­kött, þær elstu sem þekktar eru. Ekki er talið að kött­ur­inn hafi gengið í þjón­ustu manns­ins akkúrat á þess­ari eyju (því þar er ekki vitað til að hafi verið neinir villtir kettir), svo ein­hver hefur flutt kött­inn út á þessa eyju. Hvað heitir þessi eyja með hinum elstu húskatt­ar­leifum?

2.   Hér fyrrum var oft talað um að meðal íslenskra kinda væri sér­stakt kyn, dug­legra og aðsóps­meira en annað fé. Hvað var það kallað?

3.   Keith Urban heitir maður nokkur, fæddur á Nýja Sjálandi en alinn upp í Ástralíu. Hann er tón­list­ar­maður, soldið country-skot­inn og hefur gefið út fjölda hljóm­platna sem selj­ast vel. Hann er nú samt enn þekkt­ari fyrir að vera eig­in­maður einnar fræg­ustu film­stjörnu heims­ins, sem er einmitt af þessum slóðum líka. Hver er hún?

4.   Hvar kemur ferjan Norræna að landi á Íslandi?

5.   Hvað hét fyrsta konan sem var for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands?

6.   Lista­stefna ein reis í Evrópu á árum fyrri heims­styrj­aldar og blómstr­aði nokkuð í Frakk­landi fram yfir 1920, hún er gjarnan talin náskyld súr­r­eal­isma en gekk helst út á til­vilj­ana­kenndar upp­á­komur, sund­ur­klippt ljóð og lista­verk, það var reynt á þan­þol veru­leik­ans og list fundin á óvæntum stöðum. Rúmeninn Tristan Tzara er jafnan nefndur meðal helstu frum­kvöðl­anna. Hvað kall­að­ist þessi fjöruga, lit­skrúð­uga en hverf­ula list­stefna?

7.   Hvað heitir höf­uð­borg Albaníu?

8.   Hvaða heitir sá fót­bolta­völlur í Kaup­manna­höfn þar sem dönsku lands­liðin spila flestalla heima­leiki sína?

9.   Hrossa­gauk­ur­inn er sagður „hneggja“ en með hverju myndar hann þau sér­kenni­legu hljóð sem við köllum hnegg?

10.   Í hvaða styrj­öld komu skrið­drekar fyrst fram á sjón­ar­sviðið?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Fyrir hvað er þessi ein­kenni­lega vera tákn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Kýpur

2.   For­ystufé.

3.   Nicole Kidman.

4.   Seyð­is­firði.

5.   Margaret Thatcher.

6.   Dada.

7.   Tírana.

8.   Parken.

9.   Stél­fjöðr­unum.

10.   Fyrri heims­styrj­öld­inni.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Karl­mað­ur­inn á mynd­inni efst hét Vasilí Arkhipov og var sov­éskur kaf­báta­for­ingi. Haustið 1962 var hann for­ingi um borð í kaf­bátnum B-59 þegar Kúbu­deilan milli Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna stóð yfir og heim­ur­inn stóð á barmi kjarn­orku­styrj­aldar.

Kafbátur Ark­hipovs var í námunda við Kúbu þegar banda­rísk her­skip gerðu sig lík­leg til að þjarma að honum. Tveir af þremur æðstu for­ingjum um borð vildu svara með því að gera árás á banda­rísku skipin með kjarn­orku­skeytum kaf­báts­ins.

Þeir töldu ein­sýnt að stríð hefði þegar brot­ist út og þeir yrðu að verja sig.

Ef kaf­bát­ur­inn hefði gert árás, þá hefðu Banda­ríkja­menn áreið­an­lega svarað með eigin kjarn­orku­árás og alls­herjar stríð hefði mjög senni­lega brot­ist út með skelfi­legum afleið­ingum fyrir alla heims­byggð­ina. 

Arkhipov neit­aði hins vegar að fall­ast á árás á banda­rísku her­skipin. Hann benti á að kaf­báta­menn hefðu mjög tak­mark­aða hug­mynd um hvað væri á seyði og ættu ekki að taka þá áhættu að auka á stríðs­hætt­una.

Arkhipov fékk að ráða og ekki varð af neinum alls­herjar átökum. 

Til að fá rétt svar dugar að vita að þessi orðum skrýddi maður neit­aði að gera kjarn­orku­árás í Kúbu­deil­unni, og kom þannig í veg alls­herjar stríð.

Ekki er nauð­syn­legt að vita nafnið hans, til dæmis, eða þekkja til smá­at­rið­anna í mál­inu.

En hér að ofan er ann­ars önnur mynd af honum með kon­unni, henni Olgu Ark­hipovu.

Gljá­merkið á neðri mynd­inni er „andi alsæl­unnar“ sem prýðir lúx­us­bíla af gerð­inni Rolls Royce.

***

Og hlekk­ur­inn á ... já, þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár