178. spurningaþraut: Þrír íslenskir firðir, dans, filmstjarna, en engin spurning úr algebru!

178. spurningaþraut: Þrír íslenskir firðir, dans, filmstjarna, en engin spurning úr algebru!

Hlekkur gær­dags­ins!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er tekin árið 1987 í Moskvu. Ungi mað­ur­inn á mynd­inni virð­ast hafa eitt­hvað til saka unnið. Hvað gæti það verið?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvað heitir fjörð­ur­inn milli Siglu­fjarðar og Ólafs­fjarðar?

2.   „Bolero“ merkir ýmist tón­verk, eig­in­lega dans, sem á upp­runa sinn á Spáni, eða til­tekin sönglög sem runnin eru frá Kúbu. En til­tekið tón­verk sem heitir ein­fald­lega Bolero er lang­fræg­ast allra tón­verka sem þetta heiti á við. Eftir hvaða tón­skáld er það?

3.   Alfreð Gíslason er einn sig­ur­sæl­asti hand­bolta­þjálf­ari okkar Íslend­inga. Hvaða lið þjálfar hann núna?

4.   Flatey heitir eyja ein sem lengi hefur verið í byggð, og eitt fræg­asta forn­rit okkar Íslend­inga er kennt við hana. Í hvaða firði er þessi Flatey?

5.   En svo er til önnur Flatey sem á vísu ekki jafn mikla sögu en er þó mynd­ar­leg­asta eyja. Í hvaða firði er hún?

6.   Frá hvaða landi er film­stjarnan Charlize Theron?

7.   Gyllti átta­vit­inn, Lúmski hníf­ur­inn og Skugga­sjón­auk­inn heita þrjár frægar skáld­sögur fyrir börn og ungt fólk eftir Philip Pullman. Þar segir frá stúlku einni sem lendir í ótrú­legum ævin­týrum. Hvað heitir stúlkan? Þess má geta að fyrsta bókin hét í sumum ensku­mæl­andi löndum Northern Lights, en víðar – og þar á meðal á Íslandi – nefn­ist hún Gyllti átta­vit­inn.

8.   Selefkus, Ptolem­eus, Antigonus og fleiri voru helstu hjálp­ar­kokks frægs her­for­ingja hér á árum áður. Eftir að hann hvarf úr heimi börð­ust þeir inn­byrðis um arf­leifð hans. Hvað hét þessi frægi her­for­ingi?

9.   Hversu margir eru dóm­ar­arnir við full­skip­aðan Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna?

10.   Í hvaða landi var Gamal Abel Nasser lengi æðsti leið­togi?

 ***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist þessi sér­kenni­legi fiskur:

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Héð­ins­fjörður.

2.   Ravel. Hér er hlekkur á snotra útgáfu af þessu verki, Gustavo Dudamel stjórnar Berlín­ar­fíla­harm­ón­í­unni.

3.   Þýska karla­lands­liðið.

4.   Breiða­firði.

5.   Skjálf­anda.

6.   Suður-Afríku.

7.   Lýra.

8.   Alex­ander, kall­aður mikli.

9.   Níu.

10.   Egifta­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Maðurinn (Matthias Rust) hafði flogið á lít­illi einka­flug­vél inn yfir landa­mæri Sov­ét­ríkj­anna og lent henni skammt frá Rauða torg­inu. Ekki er nauð­syn­legt að muna nafn hans.

Fisk­ur­inn heitir sleggju­háfur á íslensku, en ef ein­hver veit að hann kall­ast hammer­head shark á ensku má líka fá rétt fyrir það.

***

Og hlekkur gær­dags­ins!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár