177. spurningaþraut: Hvaða vesalings manneskju er verið að hálshöggva?

177. spurningaþraut: Hvaða vesalings manneskju er verið að hálshöggva?

Hlekkur á þraut­ina frá í gær, já, þetta er hann.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er verið að afhausa konu eina árið 1587. Það gekk víst ekki sem skyldi; böð­ull­inn þurfti þrjú högg til að losa hennar frá bolnum. Hvað hét þessi kona?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða tón­list­ar­maður söng lagið This Glorious Land um England?

2.   Hvaða þre­menn­ingar voru bestu vinir d'Artagn­ans?

3.   Hver er knatt­spyrnu­stjóri Manchester United?

4.   Hver er fjöl­menn­asta borg í heimi – með helstu úthverfum?

5.   En hver er í öðru sæti?

6.   Hvaða íþrótta­grein stundar Serbinn Novak Djokovic?

7.   Hvaða kona fékk um dag­inn bók­mennta­verð­laun Nóbels? Eft­ir­nafnið nægir.

8.   Hversu margar rætur hefur Askur Ygg­dras­ils, tréð sem teygir sig um allt í nor­rænu goða­fræð­inni?

9.   Árið 1996 var Ólafur Ragnar Grímsson kjör­inn for­seti Íslands. Hver var for­seti á undan honum?

10.  „Pro­tylopus“ hét dýr sem uppi var fyrir 40 millj­ónum ára og er talið hafa getið af sér þær teg­undir úlf­alda, bæði drómed­ara og kamel­dýr, sem nú eru uppi. En í hvaða heims­álfu bjó Pro­tylopus þessi?

***   

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   P.J.Harvey.

2.   Skytt­urnar þrjár. Þeir hétu Athos, Portoz og Aramis en nóg er að vita að þeir köll­uð­ust skytt­urnar úr sögu Alex­andre Dumas.

3.   Sol­skjaer.

4.   Tókíó. Það er svo­lítið mis­mun­andi hvernig talið er, en hér er farið eftir þessum lista á Wikipedia.com.

5.   Dehlí.

6.   Tennis.

7.   Glück - svo heitir hún Louise að skírn­ar­nafni.

8.   Þrjár.

9.   Vigdís Finn­boga­dóttir.

10.   Norður-Ameríku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er verið að háls­höggva Maríu Stúart Skota­drottn­ingu.

Á neðri mynd­inni er kanadíska söngvaskáldið Leonard Cohen.

***

Og þetta er bara hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár