175. spurningaþraut: Hraðfleygur fugl, hraðhlaupandi dýr, arftaki Stalíns - og fleira

175. spurningaþraut: Hraðfleygur fugl, hraðhlaupandi dýr, arftaki Stalíns - og fleira

Gær­dags­þrautin, hér er hún!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ing:

1.   Hvaða fugl nær mestum hraða af öllum? Svarið þarf að vera nákvæmt.

2.   En hvaða land­d­dýr nær aftur á móti mestum hraða á spretti?

3.   Hvaða smá­ríki er í Pýrenea­fjöllum á landa­mærum Spánar og Frakk­lands?

4.   Við Beru­fjörð stendur hæsta fjall á Íslandi sem rís beint upp úr sjó. Hvað heitir það?

5.   Eftir að Jósef Stalín dó liðu nokkur miss­eri meðan aðstoð­ar­menn hans kepptu um völdin sín á milli. Hver þeirra varð að lokum óum­deildur leið­togi Sov­ét­ríkj­anna?

6.   Hvers vegna er spænska veikin 1918 kölluð „spænska“ veikin?

7.   Árið 1881 fædd­ist í Rúss­landi kona sem hét Anna Pavlova. Hún varð ekki nema 49 ára gömul en var við­ur­kennd sem meg­in­snill­ingur og eflaust fremsta kona í heimi í sinni grein um sína daga. Hver var hennar grein?

8.   „Mörgum árum seinna, þegar hann stóð and­spænis aftöku­sveit­inni, þá átti Aureli­ano Buendía ofursti eftir að minn­ast þess löngu liðna síð­degis þegar faðir hans fór með hann að sjá ísinn í fyrsta skipti.“ Hvað heims­fræga skáld­saga eftir Nóbels­verð­launa­höf­und hefst svo?

9.   Íslensk leik­kona, upp­haf­lega fyrst og fremst kunn fyrir þátt­töku í gríni og glensi, lék svo aðal­hlut­verkið í sjón­varps­s­er­í­unni Ástríði og hefur á síð­ari árum leikið áhyggju­fulla lög­reglu­konu. Hvað heitir hún?

10.   Hvað heitir höll­inn í Kaup­manna­höfn þar sem þingið, rík­is­stjórnin og Hæsti­réttur hafa aðsetur?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er hér til vinstri í hlut­verki Línu langsokks?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Föru­fálki. „Fálki“ dugar ekki.

2.   Bletta­tígur.

3.   Andorra.

4.   Búlands­tindur.

5.   Krústjov.

6.   Vegna rit­skoð­unar í flestum löndum Evrópu og Ameríku út af fyrri heims­styrj­öld­inni var fyrst sagt almenni­lega frá veik­inni á Spáni, sem tók ekki þátt í stríð­inu. Veikin kom hins vegar EKKI upp á Spáni.

7.   Ballett.

8.   Hundrað ára ein­semd.

9.   Ilmur Krist­jáns­dóttir.

10.   Krist­jáns­borg­ar­höll.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið var úr glæpa­mynd­inni French Connection.

Þið áttuð að þekkja hinn ógleym­an­lega hatt á höfð­inu á Popeye Doyle (Gene Hackman).

Sjá hér:

Í hlut­verki Línu langsokks var Ágústa Eva. Hún er Erlends­dóttir en þurftuð ekki nauð­syn­lega að vita það.

***

Og aftur þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár