173. spurningaþraut: Maður lyftir bikar, annar hefur erkibiskups boðskap að engu en köttur fer út í geim

173. spurningaþraut: Maður lyftir bikar, annar hefur erkibiskups boðskap að engu en köttur fer út í geim

Þrautin frá í gær? Hérna!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Þetta mál­verk eftir franska mál­ar­ann David sýnir mann nokkurn í þann veg­inn að fá sér sopa af snotrum vín­bikar sem haldið er að honum. Af ein­hverjum ástæðum virð­ast allir við­staddir harmi lostnir, nema helst sá sem er í þann veg­inn að bragða á vín­inu. Hvaða maður er það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Hvaða ríki í Evrópu sam­svarar (svona nokkurn veg­inn) róm­verska skatt­land­inu Dakíu?

2.   Aðeins einn köttur hefur farið út í geim. Kött­ur­inn lif­aði stutta geim­ferð­ina af, en dó tveim mán­uðum síðar þegar vís­inda­menn reyndu að fjar­lægja raf­skaut sem höfðu verið fest við heila katt­ar­ins til að mæla áhrif geim­ferð­ar­innar á heila­starf­sem­ina. Hvað þjóð fór svo illa með kött?

3.   Hvað heitir höf­uð­borgin í Argent­ínu?

4.   Á dög­unum fengu þrír vís­inda­menn Nóbels­verð­laun í eðl­is­fræði fyrir braut­ryðj­enda­rann­sóknir sínar á ... hverju?

5.   Alfred Mosher Butts hét atvinnu­laus banda­rískur arki­tekt sem fann upp borð­spil nokk­urt árið 1938, en það hefur síðan farið sig­ur­för um heim­inn. Hvaða spil var það?

6.   „Heyra má ég erki­bisk­ups boðs­skap, en ráð­inn er ég í að halda hann að engu og eigi hygg ég, að hann vilji betur eða viti, en mínir for­eldrar, Sæmundur hinn fróði og synir hans.“ Þetta er haft eftir íslenskum höfð­ingja á 12. öld. Hvað hét hann?

7.   NaCl.  Þetta er efna­fræði­for­múla yfir algengt efni sem víð­ast um ver­öld­ina er oftar en ekki á borðum fólks. Hvaða efni er það?

8.   Í hvaða sjón­varps­s­eríu undir alda­mótin 2000 sló leik­konan Gillian Anderson í gegn?

9.   Hvaða leik­kona vann á dög­unum Eddu-verð­laun fyrir bestan leik kvenna í aðal­hlut­verki í sjón­varps- eða kvik­mynd?

10.   Hvað heitir Amma Önd í Andr­és­blöð­unum að for­nafni?

***

Og seinni auka­spurn­ing:

Fáninn hér að neðan á sér nokkuð óvenju­lega sögu. Hann var einu sinni þjóð­fáni í einu ríki en er nú þjóð­fáni ann­ars ríkis. Hvaða ríkis?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Rúmenía.

2.   Frakkar.

Geim­kött­ur­inn Félicette

3.   Buenos Aires.

4.   Svart­holum í geimnum.

5.   Skrafl.

6.   Jón Loftsson.

7.   Borðsalt.

8.   X-Files.

9.   Katla Margrét Þor­geirs­dóttir.

10.   Andrea.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á mál­verki Davids má sjá gríska heim­spek­ing­inn Sókrates í þann mund að hann þiggur eit­ar­bikar sem hann var dæmdur til að drekka af. Hann hafði verið dæmdur til lífsláts fyrir að spilla æsku­lýðnum.

Á neðri mynd­inni má sjá fána Taívans sem var fáni Kína áður en komm­ún­istar náðu þar völdum árið 1948.

***

Og aftur er spurt: Hvar er þrautin frá í gær? Jú, hún leyn­ist hér!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár