172. spurningaþraut: Dularfull stjórnleysingjasamtök, dularfull glæpasaga, dularfullur byltingarleiðtogi og fleira dularfullt

172. spurningaþraut: Dularfull stjórnleysingjasamtök, dularfull glæpasaga, dularfullur byltingarleiðtogi og fleira dularfullt

Gær­dags­þrautin, hér er hún.

***

Auka­spurn­ing nr. 1:

Hvaða íslenski mynd­list­ar­maður skyldi hafa málað mál­verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Rami Malek heitir banda­rískur leik­ari af egifskum ættum sem sló í gegn í hlut­verki Freddie Mercury í bíó­mynd um ævi söngv­ar­ans knáa. En Malek hefur líka vakið lukku í sjón­varps­þátta­röð vest­an­hafs þar sem hann leikur tölvu­mann, sem kemst í kynni við dul­ar­full stjórn­leys­ingja­sam­tök sem virð­ast skera upp herör gegn kap­ít­al­isma og eft­ir­lits­sam­fé­lagi nútím­ans. Hvað heita þessir sjón­varps­þættir?

2.   Hvað heitir höf­uð­staður Græn­lands?

3.   Hvaða fyrr­ver­andi ráð­herra vann um dag­inn verð­laun fyrir spennu­sögu sem heitir Sykur?

4.   Hver lék aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Hvítur, hvítur dagur sem frum­sýnd var í fyrra?

5.   Nöfn fjög­urra af ríkjum Banda­ríkj­anna byrja á bók­stafnum W. Nefnið að minnsta kosti tvö þeirra.

6.   Hvað hét sú per­sóna í sög­unum um Múmínálf­ana sem var besti vinur Múmínsnáð­ans? Þessi per­sóna bar býsna stóran hatt og spil­aði gjarnan á munn­hörpu?

7.   Hvað fékk glat­aði son­ur­inn í mat­inn þegar hann sneri heim?

8.   Fáar konur voru í fremstu röð rúss­neskra komm­ún­ista þegar þeir rændu völdum 1917 og settu Sov­ét­ríkin á stofn. Þeirra helst var lík­lega Nadezhda Kon­stantinovna Krup­skaya. Þegar Jósef Stalín hóf síðar að ryðja úr vegi öllum gömlu komm­ún­ista­for­ingj­unum í hreins­unum miklu, þá dirfð­ist hann ekki að hrófla við Krup­skayu. Hvers vegna ekki?

9.   Hvað þýðir Th-ið í nafni Guðna Th. Jóhann­es­sonar for­seta?

10.   Lista­hópur einn er til suður í Reykja­vík. Fjöldi þeirra sem taka þátt á hverjum tíma mun vera örlítið á reiki, en það voru að sögn þær Þuríður Blær Jóhanns­dóttir og Kolfinna Niku­lás­dóttir sem höfðu frum­kvæði að því að kalla hóp­inn saman árið 2013. Hvað kall­ast hóp­ur­inn?

***

Auka­spurn­ing nr. 2:

Hver er mað­ur­inn til hægri sem aðeins sést hluti af?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Mr. Robot.

2.   Nuuk.

3.   Katrín Júl­í­us­dóttir.

4.   Ingvar Sig­urðs­son.

5.   Washington, West Virginia, Wyoming og Wisconsin.

6.   Snúður.

7.   Kálfa­kjöt.

8.   Því hún var ekkja bylt­ing­ar­leið­tog­ans Leníns.

9.   Thorlacius.

10.  Reykja­vík­ur­dætur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Númer 1: Íslenski málar­inn er Helgi Þorgils Frið­jóns­son.

Númer 2: Maðurinn á Kína­m­úr­num er Richard Nixon þáver­andi Banda­ríkja­for­seti í frægri Kína­heim­sókn sinni árið 1972.

Hér til hliðar má einmitt sjá stærri hluta af þess­ari sömu mynd.

***

Og loks aftur gær­dags­þrautin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár