171. spurningaþraut: Hvítt brúðkaup og liturinn á núllinu

171. spurningaþraut: Hvítt brúðkaup og liturinn á núllinu

Góðan og bless­aðan dag­inn. Hér er þraut gær­dags­ins.

***

Auka­spurn­ing númer eitt:

Hvað er að ger­ast á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.   Fyrir hvað er eða var borgin Detroit í Banda­ríkj­unum einkum þekkt?

2.   Páll post­uli hét öðru nafni áður en hann gerð­ist Krists­maður, kross­maður. Hvað hét hann þá?

3.   Einn fót­bolta­þjálf­ari situr á Alþingi Íslend­inga um þessar mundir. Hver er sá?

4.   Á hvaða hljóð­færi spilar Gréta Salóme einkum?

5.   Á rúl­lettu­hjóli eru töl­urnar til skipt­ist rauðar og svartar. Nema hvað núllið er í sér­stökum lit. Hver er litur núlls­ins?

6.   Hvaða ótrú­legi tón­list­ar­snill­ingur sendi frá sér lagið White Wedding árið 1982?

7.   Hvaða þjóð varð Evr­ópu­meist­ari í fót­bolta kvenna árið 2017 með því að vinna Dani 4-2 í úrslita­leik?

8.   Hvað heitir útbreiddasta kaffi­húsa­keðja heims­ins?

9.   Hver er eini ráð­herr­ann sem hefur látið af störfum í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur?

10.   Í grískum goð­sögum og í harm­leik einum eftir leik­skáldið Evripídes segir frá grimmd­arkvendi einu, sem drepur tvö börn sín til þess að hefna sín á eig­in­manni sínum, sem hafði yfir­gefið hana. Hvað heitir sú kona?

***

Auka­spurn­ing númer tvö:

Hver er þessi kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Bíla­fram­leiðslu.

2.   Sál.

3.   Willum Þór Þórsson.

4.   Fiðlu.

5.   Grænn.

6.   Billy Idol.

Hér er lagið. Látið eftir ykkur að njóta þessa lista­verks.

7.   Hol­lend­ingar.

8.   Starbucks.

9.   Sigríður Andersen.

10.   Medea.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni fylgist Barack Obama Banda­ríkja­for­seti ásamt starfs­liði sínu með því gegnum gervi­hnött þegar sér­sveit banda­ríska hers­ins ræðst á felu­stað Osama bin Ladens og drepur hann árið 2011.

Á neðri mynd­inni má sjá for­seta­frú Frakk­lands, Brigitte Macron, lat­ínu-, frönsku- og bók­mennta­kenn­ara. Í þessu sjald­gæfa til­felli er ekki nauð­syn­legt að þekkja skírn­ar­nafn hennar heldur dugar að vita að hún er frú Macron, eins og hún kall­ast í opin­berri umræðu í Fransíu.

Hér að neðan sést myndin öll af þeim hjónum.

***

Og hér hlekkur á þraut gær­dags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár