168. spurningaþraut: Vambir, simpansar, hákarlar og gervihnettir

168. spurningaþraut: Vambir, simpansar, hákarlar og gervihnettir

Hérna þá, hér er þrautin frá í gær.

***

Auka­spurn­ing fyrst, sú fyrri.

Á mynd­inni að ofan má sjá senu úr leik­riti einu heims­frægu. Það var í þetta sinn sett upp í Banda­ríkj­unum fyrir tveim árum. Hvað leik­rit má ætla að um hafi verið að ræða?

***

Aðal­spurn­ingar.

1.   Hvað heitir stærsta hákarla­teg­undin sem nú lifir í sjónum?

2.   Hversu mikið af erfða­efn­inu DNA er sam­eig­in­legt með mönnum og simpönsum – í pró­sentum? Hér eru ekki gefin nein skekkju­mörk.

3.   Hvað hét fyrsti gervi­hnött­ur­inn sem Sov­ét­menn skutu út í geim­inn?

4.   Hvaða ár var það?

5.   Vömb, keppur, laki og vinstur. Hvað er þetta?

6.   Hvað heitir konan sem söng á sínum tíma með hljóm­sveit Ólafs Gauks og gerð­ist síðar vin­sæll útvarps­maður?

7.   Cliff Huxtable var vin­sæll fæð­ing­ar­læknir vestur í Banda­ríkj­unum á árunum 1984-1992. Eða rétt­ara sagt, hann var per­sóna í vin­sælum sjón­varps­þætti. Hver lék þennan geð­þekka fæð­ing­ar­lækni?

8.   Ópill­aðir kind­aristlar eru ristir eftir endi­löngu, skafnir, þvegnir og lagðir í salt­vatn um tíma. Þeim er síðan vafið utan um kjöt­strengil, alltaf lundir í fyrri tíð en eftir að farið var að selja kjöt­skrokka í kaup­stað var oft haft annað kjöt­meti með. Utan um vafn­ing­inn var langoft­ast saumuð þind, en það gat líka verið mag­áll eða vömb. Vafn­ing­ur­inn er soð­inn og fergður meðan hann er að kólna. Þessi réttur er stundum borð­aður nýr en oft­ast súr en þó tíðkast sums staðar að salta hann og reykja. Hvað heitir þessi geðs­legi réttur?

9.   Hversu mörg börn eiga þau Guðni Th. Jóhann­es­son og Eliza Reid saman?

10.   Í hvaða bygg­ingu var Leik­fé­lag Reykja­víkur til húsa í ára­tugi áður en það flutti í hið núver­andi Borg­ar­leik­hús?

***

Og seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi karl á mynd­inni að neðan? Það er reyndar ekki víst að margir þekki hann sjálfan en flestir kann­ast á hinn bóg­inn við náinn ætt­ingja hans.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Hval­háfur.

2.   98 pró­sent.

3.   Spútnik.

4.   1957.

5.   Hólf í maga jórt­ur­dýra.

6.   Svan­hildur Jak­obs­dóttir.

7.   Bill Cosby.

8.   Lunda­baggar. 

9.   Fjögur. Þar að auki á Guðni eina dóttur með fyrri eig­in­konu sinni.

10.   Iðnó við Tjörnina.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Myndin efst er úr nýlegri upp­setn­ingu á leik­rit­inu Beðið eftir Godot eftir Samuel Beckett.

Maðurinn á neðri mynd­inni er Fred Trump (1905-1999), faðir Donalds Trumps for­seta Banda­ríkj­anna.

Hér til hliðar má einmitt sjá þá feðga saman á mynd.

Ekki er nauð­syn­legt að vita að Fred hét Fred, heldur dugar að hafa áttað sig á að þarna var um að ræða föður „the Donalds“.

***

Og hér er aftur hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár